varnarmálalög.
Hæstv. forseti. Ég vil þakka þessa tiltölulega jákvæðu ræðu frá hv. þm. Merði Árnasyni. Ástæða þess að ég ýjaði að því að Samfylkingin hefði kannski svolítið verið að skipta um skoðun er sú að á þeim tíma sem Samfylkingin var í stjórnarandstöðu var einhver hálfvelgja gagnvart málum sem vörðuðu NATO, vil ég meina. Það getur vel verið, fyrst hv. þingmaður nefndi að ég væri hugsanlega að snapa fæting, að Samfylkingin hafi verið að snapa atkvæði með því að hafa það svolítið óglöggt hvort hún væri virkilega NATO-sinnuð eða ekki. Nú liggur það fyrir og ég gleðst náttúrlega alveg sérstaklega yfir því.
Hv. þingmaður talar um að það sé nýjung sem nú hafi komið fram hjá Samfylkingunni að vilja aðskilnað á milli borgaralegra verkefna og hernaðarlegra en það er nú ekki svo. Þó að það sé leiðinlegt og hálfkjánalegt að vera í metingi um hlutina þá kom ég t.d. fram með frumvarp í sambandi við friðargæsluna — sem ég held að hafi verið gott frumvarp og varð að lögum — þar sem hnykkt var á því að íslenska friðargæslan starfi eingöngu að borgaralegum verkefnum.