varnarmálalög.
Forseti. Við skulum ekkert vera í neinum fætingi um gömul mál. (Gripið fram í.) Já, við förum bara á sveitaball síðar, við hv. þm. Valgerður Sverrisdóttir, og gerum út um málin þar.
Staðreyndin í málinu er sú að Samfylkingin lýsti á stofnfundi sínum í maí 2000, fyrir næstum átta árum, yfir því að hún styddi aðild Íslands að Atlantshafsbandalaginu. Ég skal ekki segja hvort þar eða í öðrum flokkum hafi verið 100% eindrægni um það mál en ég man ekki eftir mótatkvæðum á téðum stofnfundi.
Svo vil ég bara segja það til þess að gleðja þingheim að ég er sammála því sem hv. þingmaður segir hér að afstaða hennar í málefnum friðargæsluliðsins þegar hún var utanríkisráðherra var mjög til bóta. Það eru auðvitað — sjáum við sem stöndum fyrir utan utanríkisráðuneytið — tengingar á milli þess starfs sem unnið var undir hennar stjórn og þess sem nú er orðið að veruleika undir stjórn hæstv. utanríkisráðherra. Sem betur fer eru flokkaskilin og fætingurinn sem hér er stundaður ekki af því tagi að menn geti ekki fundið ýmislegt jákvætt í því starfi sem áður hefur verið unnið. Aftur á móti var ekki hafið neitt hættumat og ekki gefinn neinn kostur á slíku hættumati þó að Framsóknarflokkurinn væri í ríkisstjórn og færi þar með — hann fór að vísu ekki með utanríkisráðuneytið 15. mars 2006 en hann fór með það bæði fyrr og síðar hygg ég, og frumvarp til varnarmálalaga var, hver sem vilji manna kann að hafa verið, ekki lagt fram af ríkisstjórn sem Framsóknarflokkurinn átti aðild að.