Fiskræktarsjóður.
Herra forseti. Það var mjög athyglisvert sjónarmiðið hjá hv. þingmanni að auðlindagjald sé ekki skattur heldur einhvers konar nýtingarréttur eða þjónustugjald eða eitthvað svoleiðis. Það er alveg ný hugsun. En hann talaði um að það væri eðlilegt að leggja ekki skatt á varmaorkuverin vegna þess að fiskurinn væri þá soðinn og ég skil það alveg.
En hvað segir hv. þingmaður um Kárahnjúkavirkjun þar sem Jökla var og ekki ein einasta padda er í vatninu? Og það má eiginlega segja að Jökla hafi breyst í laxveiðiá vegna virkjunarinnar. Ætti þá ekki skatturinn að vera öfugur? Ættu ekki landeigendur að borga Landsvirkjun fyrir að breyta Jöklu úr skaðræðisfljóti í elskulega laxveiðiá?
Mér finnst þessi umræða vera mjög skrýtin yfirleitt. Það að vatnsafl sé að borga fyrir veiðihús og annað slíkt — þeir eiga jú að bæta fyrir það tjón sem þeir valda beint og það gera þeir. En að þeir séu auk þess að borga ævarandi skatt eins og þeir gera núna fyrir aðstöðu fyrir laxveiðimenn, auðmenn erlendis frá sem kaupa veiðileyfi, það skil ég ekki.