135. löggjafarþing — 91. fundur,  16. apr. 2008.

niðurstöður vorralls Hafrannsóknastofnunar.

[15:31]
Hlusta

Guðjón A. Kristjánsson (Fl):

Hæstv. forseti. Ég tel fullt tilefni til að ræða nú um stöðu þorskstofnsins, atvinnuhorfur og aðra þætti sem tengjast þeirri framtíð sem við byggjum á að því er varðar veiðar í fiskveiðilögsögunni, einkanlega úr okkar stærsta nytjastofni, þorskinum sem gefur um 40% af tekjunum í botnfiskveiðinni.

Samkvæmt niðurstöðum úr togararallinu í vor er þess látið getið að heildarvísitala þorsksins hafi hækkað um 12% á milli ára, þ.e. frá því sem var stofnvísitalan í fyrra og það sé einkum vegna eldri árganga þorsksins. Það er í sjálfu sér mjög gott að merki um aukningu í þorskgengd á miðin sem sáust á vertíðinni í fyrra, og margir fiskimenn voru sammála um þá, hafi nú gengið eftir og fiskurinn komi í enn meira mæli, þ.e. stærri fiskurinn, inn á miðin en verið hefur.

Um það eru margir fiskimenn sammála og við höfum séð fyrirsagnir eins og að aflabrögð væru fáránlega mikil og að allar gamlar aflasögur væru hjóm eitt miðað við það sem gerst hefði víða á vertíðarsvæðunum í vetur. Þorskurinn er líka betur á sig kominn, það kemur fram í þessum gögnum að hann sé lifrarmikill og það er auðvitað góð vísbending um að væntanlega gæti hrygning þorsksins tekist vel. Við vitum líka að ætisgöngur hafa sótt inn á Grænlandsmið og þaðan hafa síðan komið göngur á Íslandsmið, það er að gerast núna svo eftir er tekið og a.m.k. annað árið í röð upp að Vesturlandi. Þetta vita fiskimenn og mönnum þykja þetta góðar vísbendingar. Sama er ekki hægt að segja um fiskifræðinga á Hafrannsóknastofnun sem segja beinlínis að fram undan sé sú staða að halda þurfi þorskaflanum gjörsamlega óbreyttum a.m.k. næstu fimm ár, svo vitnað sé í ummæli Björns Ævars Steinarssonar, sviðsstjóra veiðiráðgjafarinnar á Hafró. Hann heldur því einnig fram að langvarandi sókn og einkum í eldri fiskinn í stofninum sé allt of mikil.

Ég er ekki viss um það, hæstv. forseti, að nokkur fiskimaður á vertíðarsvæðunum sé sammála þessu mati fiskifræðingsins á Hafrannsóknastofnun varðandi þorskstofninn eins og hann hefur komið mönnum fyrir sjónir við veiðar í vor. Ég óttast það mjög, og vil láta þess getið hér í fyrri ræðu minni, að á komandi vikum og mánuðum muni brottkast á þorski aukast alveg gífurlega. Ég dreg þá ályktun af því að aflinn er góður en veiðiheimildirnar snarminnka og ég alla vega fæ upphringingar um það að menn séu farnir að velja harkalega úr þorskaflanum, sem er auðvitað fylgifiskur þess þegar heimildirnar eru svo litlar að menn sjá ekki framtíð sinni borgið við veiðarnar.

Við sjáum líka að það hefur verið mikið veitt af ýsu og í togararallinu kemur einnig fram að ýsan virðist nánast í frjálsu falli, hefur dregist saman samkvæmt vísitölum Hafró um 25%. Það gæti þýtt að við þyrftum að skera ýsuna verulega niður á næsta fiskveiðiári. Ég vil því beina þeirri spurningu til hæstv. sjávarútvegsráðherra hvort ekki sé nú, í ljósi margra staðreynda um fiskveiðarnar, rétt að gera skjóta úttekt á því hver hefur verið raunverulegur afli hjá línubátum, netabátum og togurum, þ.e. þeim fáu skipum sem hafa með einhverjum hætti getað einbeitt sér að þorskveiði en þau eru ákaflega fá. Nánast allur flotinn er á svokölluðum skrapveiðum og hefði það þótt saga til næsta bæjar fyrir nokkrum áratugum að svo háttaði til á vertíðinni.

Ég hef líka miklar áhyggjur af því vegna bakslags innan lands að atvinnuástand verði mjög slæmt í sjávarbyggðunum á komandi missirum. Ég hvet þess vegna hæstv. sjávarútvegsráðherra til að fara snarlega yfir þetta mál og láta það ekki dragast fram í júnílok eða júlí að taka ákvörðun um (Forseti hringir.) að lagfæra stöðuna varðandi þorskaflann svo við lendum ekki í sóun á verðmætum sem gæti skipt tugum og jafnvel hundruðum milljóna.