vegalög.
Virðulegi forseti. Sú nefnd sem hv. þingmaður sat í fyrir hönd Sambands sveitarfélaga endurskoðaði öll vegalögin og breytti því sem var þá ekki til góðs. Þannig voru þau sett fram og hv. þingmaður gerði enga tillögu um breytingu á því sem var í gömlu lögunum. Þess vegna er þetta svona í nýju lögunum með samþykki hans sem þáverandi fulltrúa Sambands sveitarfélaga og þeirra sem sátu á Alþingi þegar þetta var samþykkt. (Gripið fram í.)
Virðulegi forseti. Það liggur við að ég segi að þetta sé venjulegt ábyrgðarleysi vinstri grænna sem kemur hérna fram og að sí og æ sé verið að leita að einhverjum atriðum til að vekja athygli á sjálfum sér. Þannig er það bara eins og ég segi og hef sagt. Sundabrautarmálið er í ákveðnu ferli. Væntanlega eru vinstri grænir ekki á móti því að þetta fari í umhverfismat eða hvað? Ég hef ekki heyrt áður að svo sé. Umhverfismatið er að hefjast og við leyfum því að ganga fram. Hægt væri að taka ákvörðun í framhaldi af því.
Virðulegi forseti. Ég vil aðeins segja eitt að lokum: Ég hef verið ásakaður um ýmislegt annað hingað til en að vera á móti jarðgöngum, eða hvað?