135. löggjafarþing — 93. fundur,  17. apr. 2008.

opinberir háskólar.

546. mál
[12:45]
Hlusta

Kolbrún Halldórsdóttir (Vg) (andsvar):

Herra forseti. Til að taka af öll tvímæli varðandi það sem ég sagði um skipan háskólaráðsins þá hef ég svo sem ekki gert upp hug minn um þá tillögu í þessu frumvarpi. Ég er fullkomlega opin fyrir því að skoða hana fordómalaust eins og svo mjög er kallað á í þessari umræðu.

Ég tel ábendingar sem við höfum fengið frá Vöku, félagi lýðræðissinnaðra stúdenta, athyglisverðar og tel að það þurfi að skoða nánar þær ábendingar að með þessari breytingu sé verið að fækka fulltrúum nemenda í háskólaráðinu úr tveimur af tíu niður í einn af sjö eða úr 20% nefndarmanna niður í 14,3%. Þetta er athyglisverð ábending sem ég treysti að farið verði ofan í saumana á ásamt öðrum þáttum þessa máls.

Ég vil hins vegar gera athugasemd við annað í máli hv. formanns menntamálanefndar, sem varðar í raun og veru gildistökuákvæðið og þann mikla hraða sem á að vera á afgreiðslu þessa máls. Ég bendi hv. þingmanni á að 15 vinnudagar eru eftir af þessu þingi. Á þeim 15 dögum eru eftir 5 fundir í menntamálanefnd. Menntamálanefnd fundar tvisvar í viku og það verður talsvert um fundardaga, eins og venjulega á vorin, sem verða frídagar. Þótt einir 5 nefndadagar verði á þessum tíma þá er ég sannfærð um að við eigum eftir að eiga fullt í fangi með að klára þau fjögur frumvörp sem liggja fyrir nefndinni og hafa verið í vinnslu síðan í desember, skólafrumvörpin þrjú og menntafrumvarpið stóra. Ég sé ekki hvernig hv. þingmaður ætlar að hafa tíma til að klára þetta frumvarp í ofanálag á þeim skamma tíma sem eftir er af þinginu.