framkvæmdaáætlun í barnaverndarmálum til 2010.
Herra forseti. Ég get verið sammála því að almennt er vel hlúð að börnum á Íslandi. Ég er alveg sammála því og foreldrar sinna því. En ég er að tala um hóp barna sem greinast með geðraskanir og alvarlegar persónuleikatruflanir. Það eru 3–5% af börnum fæddum í hverjum árgangi. Þetta eru 2.000 börn, í þessum áhættuhópi, á aldrinum frá fæðingu til 16–17 ára aldurs.
Ég einblíni á þessi börn sem eru í verulegum vanda. Þau eru í þeim áhættuhópi að lenda í fíkniefnum, afbrotum og fangelsum með stórkostlegum kostnaði fyrir þjóðfélag okkar. Hvert barn sem illa fer fyrir á árunum 13 til tvítugs, sem eyðileggur sig á sál og líkama, getur kostað þjóðfélag okkar 300 millj. kr. Þannig að ef maður bjargar 10 börnum þá er maður að spara, ef maður hugsar þetta í peningum, 3 milljarða kr.
Ég þarf ekki að fjölyrða um að það að eyða 3,8 milljörðum í hernað og hernaðartengd atriði og heræfingar á Íslandi er fráleitt þegar upplýst er að það eigi að fara með 35 millj. kr. inn í málaflokkinn sem hér er mælt fyrir um. (Fél.- og trmrh.: Það er miklu meira.) Það eru 55 millj. kr. Ég spurði hæstv. félagsmálaráðherra að þessari tölu. (Fél.- og trmrh.: Það er á fjárlögum núna og heldur áfram á næsta ári.) Já, en það vantar svo gríðarlega á þennan málaflokk að mér finnst þessi fjárveiting til hernaðar- og varnarmála geggjuð.