framkvæmdaáætlun í málefnum innflytjenda.
Virðulegi forseti. Við setjum nú fram fyrstu framkvæmdaáætlunina í þessum mikilvæga málaflokki og í kjölfar þess verða lög sett. Þessi málaflokkur hefur fengið að þróast án þess að til hafi verið um hann löggjöf eða sérstök áætlun. Það er kannski af hinu góða líka vegna þess að margir hafa komið að þessu máli um land allt, félagasamtök og ýmsir aðilar sem um þessi mál fjalla. Á því höfum við einmitt byggt í þessari áætlun.
En vegna fyrirspurnar hv. þingmanns um að ábyrgðin og framkvæmdin hvíli fyrst og fremst á opinberum vegum þá er eðlilegt að ábyrgðin sé fyrst og fremst þar. Það er þó ekkert í þessari áætlun sem kemur í veg fyrir að hún verði fengin öðrum aðilum til framkvæmda eins og þeim sem hv. þingmaður nefndi. Þetta verður vitaskuld skýrt nánar í þeirri löggjöf sem (Forseti hringir.) sett verður á grundvelli þessarar framkvæmdaáætlunar.