135. löggjafarþing — 93. fundur,  17. apr. 2008.

framkvæmdaáætlun í málefnum innflytjenda.

535. mál
[19:21]
Hlusta

Lúðvík Bergvinsson (Sf) (andsvar):

Virðulegi forseti. Mér hefur þótt athyglisvert að hlýða hér á þrjá þingmenn Frjálslynda flokksins flytja mál sitt. Mér fannst vera samhljómur í máli Grétars Mars Jónssonar hv. þingmanns og Kristins H. Gunnarssonar en mér fannst að það mætti greina annan tón hjá hv. þm. Jóni Magnússyni.

Það sem ég tók eftir í ræðu hv. þingmanns var að stjórnvöld verði að huga mjög að því fólki sem samfélaginu gæti staðið ógn af, þ.e. að stjórnvöld hafi ekki brugðist nægilega við slíku fólki sem hugsanlega kann að stafa einhver ógn af, ef ég skildi hv. þingmann rétt. Mig langar að kalla aðeins eftir því til hvaða aðgerða stjórnvöld gætu gripið og hvers konar fólk er verið að ræða hér um svona til að fá meira kjöt á beinin og átta mig betur á umræðunni.

Hv. þingmaður lagði líka ríka áherslu á það að stjórnvöld leggðu mikið upp úr því að útlendingar lærðu málið, siði, kynntust lögum, menningu og siðum mjög vel. En mér fannst ekki koma alveg vel nægilega fram hvernig ætti að bregðast við því ef viðkomandi vill ekki kynna sér þessa siði o.s.frv. Það er ekki erfitt að koma hér og setja fram svona sjónarmið en það er afar mikilvægt að fylgja því eftir og reyna að gera grein fyrir því til hvaða aðferða er hægt að grípa. Ég held að það væri til þess að dýpka og fylla þessa umræðu ef hv. þingmaður væri tilbúinn til þess að benda á slíkar aðgerðir. (Forseti hringir.)