135. löggjafarþing — 93. fundur,  17. apr. 2008.

viðauki við fjögurra ára samgönguáætlun 2007--2010.

519. mál
[22:10]
Hlusta

Jón Magnússon (Fl) (um fundarstjórn):

Virðulegi forseti. Ég hygg að það væri til bóta og til að gera góðan brag á annars þetta tætingslega þinghald sem verið hefur í dag að tekin væri ákvörðun um það með hvaða hætti þinghaldið verður. Ég mælist til þess og beini þeim tilmælum til virðulegs forseta að lokið verði við umræðuna um það mál sem nú er á dagskrá og fundi síðan slitið. Ég beini þeim tilmælum eindregið til virðulegs forseta að taka ákvörðun um þetta þegar í stað þannig að þingmenn viti hvenær þingstörfum lýkur. Miðað við það að sjö voru á mælendaskrá síðast þegar ég skoðaði hana þá hygg ég að það sé a.m.k. rúmur klukkutími eftir til að ljúka þessu máli. En ég hygg að það væri til góðs að taka ákvörðun um það nú þegar að fundi verði slitið þegar þessu máli er lokið.