viðauki við fjögurra ára samgönguáætlun 2007--2010.
Herra forseti. Hér er verið að ræða viðauka við fjögurra ára samgönguáætlun fyrir árin 2007–2010 sem er að mörgu leyti merkilegt plagg. Einhverjir hv. þingmenn hafa komið upp og sagt að þetta plagg hafi ekkert lagalegt gildi. Tæknilega er það örugglega rétt en ég hef trú á að það sé vilji þingsins sem kemur fram í því og þetta sé eitthvað sem á að vinna eftir.
Það er alveg ljóst að þingmönnum sem búa á höfuðborgarsvæðinu er kannski meira umhugað um hvernig samgöngumálum er háttað þar en aftur á móti tala þingmenn sem búa úti á landi fyrir framkvæmdum í einstökum kjördæmum. Mér finnst ekkert óeðlilegt við það.
Það sem ég hef hins vegar verið að spá í eru framkvæmdir á höfuðborgarsvæðinu, því að það er alveg ljóst að umferðarkerfið allt er að springa þar. Ég ætla að halda því fram að aukning á umferð verði ekki jafnmikil og verið hefur og það sé í rauninni tiltölulega einföld tölfræði sem ræður því, það eru fleiri bílar í landinu en ökuskírteini og það er afar hæpið að hver Íslendingur fari að aka fleiri en einum bíl í einu. Aukningin sem við höfum verið að sjá á vegamannvirkjum er ekki síst til komin vegna þess að bílaeign landsmanna hefur aukist mjög mikið sem hefur aftur leitt til þess að æ færri eru í hverjum bíl. Hins vegar verður aukningin alveg klárlega sú náttúrulega aukning sem verður meðal landsmanna að því gefnu að ekki komi til öflugri og betur nýttar almenningssamgöngur.
Eitt af því sem ríkisvaldið hefur tekið upp og vill gera er að láta sveitarfélögin sjá um vegi sem liggja innan einstakra sveitarfélaga. Það hefur harla lítið verið gerð grein fyrir með hvaða hætti það eigi að gerast. Þetta hefur verið lagt þannig upp að sveitarfélögin fái þessa vegi gefins að því tilskildu að þau sjái síðan um þá. Þetta getur komið mjög misjafnlega niður á sveitarfélögum, bæði eftir því hvað þau eru stór og eins hvernig viðkomandi vegir eru þegar tekið er við þeim.
Það sem ég vildi bera upp hér sem hugmynd, herra forseti, er að ríkisvaldið setjist niður með sveitarfélögunum á höfuðborgarsvæðinu og setji fram stóra og metnaðarfulla áætlun um það hvernig menn ætli að leysa þessa austur/vestur- og norður/suðurása á höfuðborgarsvæðinu, hvernig menn ætla að koma umferðinni frá syðstu og austustu byggðunum niður í miðbæ, því að það vill svo illa til að miðborg Reykjavíkur er byggð á skaga ef svo má segja og þess vegna er hún alls ekki miðsvæðis. Miðsvæðið er náttúrlega í Smáralindinni í Kópavogi, eins og allir vita, en svona er Reykjavíkursvæðið. Þess vegna held ég að það væri mjög gott að fá sveitarfélögin til að taka við þeim vegum sem eru innan viðkomandi sveitarfélaga með því skilyrði að um leið sé lögð fram metnaðarfull áætlun um það hvernig menn ætla að leysa umferðarþungann á höfuðborgarsvæðinu. Það gæti verið með öflugu vegakerfi og þar þyrftu væntanlega líka að koma til jarðgöng. Þar með ættu sveitarfélögin að geta verið sátt við að taka við þessum vegum ef þau sjá að fjármunirnir sem annars færu í þessa vegi nýtast í öflug og góð samgöngumannvirki því að allar þessar umferðaræðar eru að springa eins og við sjáum á hverjum morgni þó svo að við megum náttúrlega ekki alveg missa okkur í vitleysunni, því að auðvitað er ekkert óeðlilegt við það að þurfa að bíða eitthvað í umferðinni.
Þá komum við að öðru máli sem er hér í vegáætlun og það eru samgöngumálin en ég veiti því sérstaka athygli að ekki er hugsað mikið um almenningssamgöngur á höfuðborgarsvæðinu þar. Ég held að almenningssamgöngur muni styrkjast á komandi árum, ekki aðeins vegna þess að eldsneytisverðið er orðið svo hátt og mun væntanlega haldast hátt, heldur líka vegna þess að ég held að við munum gefa þeim leiðum sem almenningsvagnar aka eftir miklu meiri gaum en við höfum gert. Reykjavíkurborg hefur verið að koma á forgangsakreinum í borginni og forgangsakreinar þurfa að koma til miklu víðar. Ég nefni t.d. Kringlumýrarbrautina sérstaklega í því sambandi. Ég held að það sé langbesta auglýsingin fyrir almenningssamgöngur ef þeir sem fastir eru í umferðarhnút horfa á gula bílinn keyra fram hjá sér fullan af fólki, þegar fólk fer að sjá í rauninni hagnað, tímalegan hagnað í því að taka strætó svo ég tali nú ekki um peningalegan hagnað eins og það er klárlega er ef fólk tekur strætó. Auk þess er byggðin að þéttast sem er líka ein af stórum forsendum fyrir því að efla almenningssamgöngur. Ég geri mér vonir um að þessi samgöngumáti eigi eftir að aukast og að við eigum eftir að gefa honum miklu meira vægi en við höfum gert hingað til. Það ætti að einhverju leyti líka að geta komið til móts við aðrar framkvæmdir, þ.e. ef við eflum almenningssamgöngur er ekki víst að byggja þurfi upp aðrar samgönguæðar jafnhratt og ella þyrfti.
Annað mál sem mig langar að hreyfa varðandi samgöngumál á höfuðborgarsvæðinu eru hljóðvistarmál. Við þurfum að gefa hljóðvistarmálum miklu meiri gaum en gert hefur verið og það er alveg ljóst að íbúar höfuðborgarsvæðisins munu gera miklu meiri kröfur um það í framtíðinni. Við munum eftir þeim deilum sem urðu þegar Reykjanesbraut var tvöfölduð í gegnum Garðabæ og þeir sem ferðast hafa þar um hafa sé þann risavegg sem þar er kominn, gríðarlega öflugur hljóðveggur. En það verður auðvitað að gæta samræmis á milli íbúa og hvort sem það verður lausn eins og við sjáum í Garðabæ, sú útfærsla, munum við horfa til þess að íbúar eiga rétt á því að um leið og vegir eru hannaðir séu gerðar ríkar kröfur um að hönnun hljóðvistar sé vönduð og komi strax inn þegar er verið að byggja nýja vegi.
Þá langar mig að koma aðeins inn á samgöngumiðstöðina sem á að fara að byggja. Ég ætla að leyfa mér að kalla þetta flugstöð. Ég held alla vega að sú hugmyndafræði að strætó fari þarna niður eftir sé hugmynd sem komi ekki til með að ganga upp. Það kemur til af því að verið er að lengja akstursleiðir vagnanna gríðarlega mikið ef þeir eiga að fara niður að Hótel Loftleiðum og þar í kring. Ég hef látið slá á það lauslega og mér sýnist að bara sá leggur muni kosta einhvers staðar á bilinu 130–180 millj. kr., bara aksturinn, og þá eftir að borga gjaldið fyrir að fá að vera inni í samgöngumiðstöðinni. Auk þess veit ég líka að ekki hefur verið haft mikið samráð við strætó vegna þessa. Það hefði verið æskilegra út frá samgöngum strætisvagna að samgöngumiðstöðin stæði miklu ofar en nú er raunin, einhver staðar nær Valssvæðinu eða þar í kring því að þetta er heilmikill útúrdúr og fyrir utan fjárhagslegan kostnað hefur þetta líka mikla mengun í för með sér.
Tvöföldun vega eru gríðarlega dýrar framkvæmdir. Ljóst er að tvöföldun vega er eitthvað sem allir vilja en ég tel að við ættum að vera opin fyrir því að hugsa í 2+1 lausnum því að slysahættan er náttúrlega langmest þar sem tveir andstæðir straumar mætast. Við getum lagt 2+1 veginn miklu hraðar en 2+2 vegi, miklu lengri vegarkafla fyrir sama pening og þar með getum við aukið umferðaröryggi alveg gríðarlega. Hins vegar held ég að ekki sé pólitískur vilji fyrir því að taka upp umræðu um þetta varðandi Suðurlandsveginn því að hann verður væntanlega 2+2 og búið er að gefa út yfirlýsingar um það.
Við ættum líka að skoða mjög alvarlega styttingu leiða norður yfir heiðar, norður yfir hálendið jafnvel, því að það væri gríðarleg lyftistöng fyrir Norðurland ef meiri samgöngur yrðu á milli landshlutanna. Hugmyndir um Kjalveg mundu náttúrlega bæta við alveg nýrri vídd þar sem Suðurlandið kæmi inn og verða til þess að auka gríðarlega ferðamennsku að vetrarlagi, ég ætla að leyfa mér að halda því fram. Þetta eru tvö ólík veðursvæði sem stutt yrði á milli og mundi þýða það að samgöngur á milli þeirra yrðu meiri og væri ágætt ef landinn færi bara norður í land í staðinn fyrir að fara í ítölsku Alpana.
Herra forseti. Tíminn er liðinn. Ég ætla samt að gefa eina yfirlýsingu hér: Ef Vestmannaeyingar vilja ekki Landeyjahöfn eða Bakkafjöruhöfnina ætla ég ekki að stuðla að því að hún verði byggð. Ef þeir vilja ekki höfnina eins og umræðan hefur verið undanfarna daga, (Forseti hringir.) ég veit reyndar ekki hvaða umboð þessir aðilar hafa til að tala fyrir alla Vestmannaeyinga, þá ætla ég ekki að þröngva höfninni upp á þá.