135. löggjafarþing — 93. fundur,  18. apr. 2008.

viðauki við fjögurra ára samgönguáætlun 2007--2010.

519. mál
[00:19]
Hlusta

samgönguráðherra (Kristján L. Möller) (Sf) (andsvar):

Hæstv. forseti. Aðeins vegna þess að hv. þingmaður nefndi hér áðan flóabátinn Baldur og nokkrir þingmenn hafi talað um hann þá er mér bæði ljúft og skylt að svara því. Ég hef hlustað á og fengið ályktanir frá sveitarfélögum þarna og fleirum, eins og þingmenn Norðvesturkjördæmisins hafa einnig fengið.

Mér sýnist ekki ætla að ganga eftir áform um hvenær almennilegur vegur á að vera kominn á þetta svæði, eins og talað var um þegar samningurinn var gerður við núverandi rekstraraðila Baldurs, svokallaður niðurtröppunarsamningur, og þá verðum við að sjálfsögðu að taka þetta upp og skoða á ný. Það er auðvitað grundvallaratriði því sá samningur var gerður miðað við að almennilegur vegur væri kominn á ákveðnum tíma. Það gengur ekki eftir og þá skoðum við þetta að sjálfsögðu aftur.