135. löggjafarþing — 94. fundur,  21. apr. 2008.

umfjöllun fjárlaganefndar um skýrslu Ríkisendurskoðunar.

[15:05]
Hlusta

Forseti (Sturla Böðvarsson):

Forseti vill tilkynna að með bréfi, dags. 17. apríl 2008, hefur forseti óskað eftir því að fjárlaganefnd fjalli um skýrslu Ríkisendurskoðunar um framkvæmd fjárlaga árið 2007 og ársáætlun 2008 í samræmi við reglur um þinglega meðferð skýrslna Ríkisendurskoðunar sem forsætisnefnd samþykkti 12. febrúar sl.