135. löggjafarþing — 94. fundur,  21. apr. 2008.

frumvarp um lögreglustjóraembættið á Keflavíkurflugvelli.

[15:18]
Hlusta

forsætisráðherra (Geir H. Haarde) (S):

Herra forseti. Framgangur þingmála frá ríkisstjórninni er alveg í föstum skorðum. Ef hugmyndin er að leggja fram frumvarp á Alþingi sem stjórnarfrumvarp þarf það fyrst að fá samþykki í ríkisstjórninni og heimild til að ganga þaðan til þingflokka stjórnarflokkanna sem fjalla um það, gera hugsanlega á því breytingar, afgreiða það síðan annaðhvort með jái eða neii. Annaðhvort heimila þeir framlagningu þess eða ekki. Ef það er gert þá er komið fram stjórnarfrumvarp.

Þetta sem sagt gerist þannig að ríkisstjórnin fer að sjálfsögðu fyrst yfir málið og framvísar því síðan til stjórnarflokkanna, þingflokkanna, sem hafa það hlutverk að fara með gagnrýnum augum í gegnum slík mál.

Þetta á við um öll stjórnarfrumvörp. Það getur tekið misjafnlega langan tíma að koma þeim þannig fyrir að báðir þingflokkar séu ásáttir um efni og orðalag í slíkum frumvörpum. Þetta er alþekkt.

En það er nýtt hérna í þinginu, og hefur komið hér áður í vetur, að fyrir fram séu menn rukkaðir og kallað eftir því að þingmál komi fram sem eru til meðferðar í flokkunum áður en búð er að afgreiða þau. Ég man ekki betur en að fyrr í vetur hafi menn suðað eftir því í þingsal hvað liði orkumálafrumvarpi iðnaðarráðherra sem var bara í eðlilegri vinnslu milli þingflokkanna. Sama er með þetta, hér er spurt um þingmál sem er í vinnslu og bara í eðlilegri meðferð. Þannig er málið. (GÁ: … óvissa.)

Það er svo annað mál, hv. þingmaður, hvort það veldur óvissu eða ekki. Viðkomandi þingmaður, hv. þm. Grétar Mar Jónsson, var að spyrja um framganginn og hvernig þetta gengi fyrir sig. Ég tel mig hafa svarað því núna.