frumvarp um lögreglustjóraembættið á Keflavíkurflugvelli.
Hæstv. forseti. Það er auðvitað mjög óeðlilegt líka þegar að við fáum tilkynningar frá hæstv. dómsmálaráðherra um það að hæstv. fjármálaráðherra ætli að leggja fram tillögu og gera breytingu á tollamálum á Íslandi, ætli að setja alla tollara undir einn hatt. Það er mjög óeðlilegt að það sé gert með þeim hætti að við fáum að frétta af þessu í formi tilkynningar. Ekki nóg með það, það var ekki búið að tala við einn eða neinn í Samfylkingunni um málið og við fengum öll bara að heyra það að Alþingi ætti að samþykkja þetta fyrir þinglok og að 1. júlí tæki þessi breyting gildi.