135. löggjafarþing — 94. fundur, 21. apr. 2008.
frumvarp um lögreglustjóraembættið á Keflavíkurflugvelli.
Herra forseti. Ég tel ekki að það hafi verið neitt óeðlilegt við þetta mál eða málsmeðferðina í því eftir að sú staða kom upp að þetta mál þyrfti að leysa með lagabreytingu. Þá liggur alveg fyrir að Alþingi hefur um það síðasta orðið. Það er einfaldlega þannig.
Hvernig menn vinna síðan málið innan þessara stjórnarflokka, eða gerðu innan fyrrverandi stjórnarflokka, er mál stjórnarflokkanna. Þeir hafa komið sér upp ákveðnum vinnuaðferðum í því efni.