135. löggjafarþing — 94. fundur,  21. apr. 2008.

upplýsingar um launakjör hjá RÚV.

[15:23]
Hlusta

Kolbrún Halldórsdóttir (Vg):

Hæstv. forseti. Ég kann vel að meta stutt og skorinorð svör en ég vil engu að síður knýja hæstv. ráðherra til að skýra þetta örlítið nánar. Skil ég hæstv. ráðherra rétt að hún sé þeirrar skoðunar að allar upplýsingar um launakjör starfsmanna Ríkisútvarpsins ohf. heyri undir upplýsingalög, nr. 50/1996?