135. löggjafarþing — 94. fundur,  21. apr. 2008.

Evrópumál.

[15:28]
Hlusta

Valgerður Sverrisdóttir (F):

Hæstv. forseti. Ég vildi gjarnan spyrja hæstv. ráðherra þá áfram hvort hún hafi trú á því að það komi mikil afurð frá þessari nefnd miðað við það hvernig tókst til um skipan hennar. Stjórnarflokkarnir gátu ekki komið sér saman um formann, þeir eru tveir eins og reyndar hefur komið fyrir áður í sögu lýðveldisins og einmitt í samstarfi þessara tveggja flokka.

Það er athyglisvert að í viðtali við hæstv. utanríkisráðherra í fjölmiðlum í gær minnist hún aldrei á ríkisstjórnina í sambandi við Evrópumálin. Hún talar um Alþingi Íslendinga og að meiri hluti þurfi þá að vera fyrir því á Alþingi ef það eigi að hefja vinnu vegna undirbúnings aðildar að Evrópusambandinu. Þetta er nokkuð sérstök nálgun hjá hæstv. ráðherra og formanni þess stjórnmálaflokks sem á aðild að ríkisstjórn. Er hún að boða þarna einhver ný vinnubrögð í sambandi við það að halda þessu máli vakandi sem hún lætur (Forseti hringir.) mikið yfir að sé hennar (Forseti hringir.) hjartans mál?