ný fjárhagsspá fjármálaráðuneytis.
Frú forseti. Í fjármálaheiminum og efnahagslífinu, nákvæmlega eins og í öðrum þáttum, snýst málið um trúverðugleika. Það er talað um að eitt helsta vandamál íslensks efnahagskerfis nú sé skortur á trúverðugleika. Það er talað um að bankarnir hafi farið svo offari erlendis að þeir hafi glatað eða misst stóran hluta af trúverðugleika sínum. Það er talað um að Seðlabankinn hafi með aðgerðum sínum eða aðgerðaleysi, hvað menn vilja kalla það, tapað trúverðugleika. Sá aðilinn sem hefur kannski tapað mestum trúverðugleika er ríkisstjórnin, þ.e. fjármálaráðherra fyrir hönd ríkisstjórnarinnar. Við sjáum hér og nú gjörólíkar þjóðhagsspár frá tveimur ríkisapparötum — Seðlabankinn á að framfylgja stefnu ríkisstjórnarinnar hverju sinni. Hann á að láta ríkisstjórnina vita ef það gengur ekki upp með þeim tækjum sem hann hefur þegar hann birtir þjóðhagsspá sína og einum eða tveim dögum seinna birtir fjármálaráðuneytið sína þjóðhagsspá sem er gjörólík. Þetta, frú forseti, kallast einmitt að hella olíu á eld ótrúverðugleikans og maður veltir fyrir sér hvort þessir tveir aðilar tali ekki saman.
Ég hef gagnrýnt stefnu fjármálaráðherra í ríkisfjármálum. Viðskiptahallinn fór meira en tvöfalt fram úr því sem spáð var af hálfu ráðuneytisins á árinu 2006. Hæstv. ráðherra fannst það allt í lagi. Við þurfum nú að sameinast um trúverðugleika í fjármálum ríkisins. (Forseti hringir.) Við þurfum að breyta efnahagsstefnu ríkisstjórnarinnar, frú forseti. Trúverðugleikinn birtist ekki í tveimur ólíkum þjóðhagsspám.