135. löggjafarþing — 94. fundur,  21. apr. 2008.

ný fjárhagsspá fjármálaráðuneytis.

[15:59]
Hlusta

Guðjón A. Kristjánsson (Fl):

Hæstv. forseti. Í fyrsta lagi beini ég þeirri beinu spurningu til hæstv. fjármálaráðherra hvort skilja eigi svör hans hér áðan þannig að ekki sé þörf fyrir meiri upplýsingar, hvað þá heldur upplýsingar sem ekki er beinlínis stýrt af ríkisstjórn á hverjum tíma. Hæstv. fjármálaráðherra sagði áðan að við hefðum miklu meiri upplýsingar en við hefðum haft á tímum Þjóðhagsstofnunar, og miklu betri. Ég leyfi mér að draga þetta í efa, hæstv. forseti, því að ég minnist þess ekki að þó að við höfum þessar greiningardeildir bankanna sem hæstv. fjármálaráðherra vitnaði til hafi þær á haustdögum spáð því sem við stöndum frammi fyrir núna. Ég minnist þess ekki og ég hvet menn til að lesa spárnar frá því í september og október. Ég held að þær hafi ekkert spáð því og þar af leiðandi er ekki mikið á því að byggja. Menn hafa kannski einhverja aðra hagsmuni fram að setja hjá bönkunum en það sem komið hefur í ljós.

Ég spyr líka hæstv. fjármálaráðherra hvort hann hafi talið rétt á sínum tíma að aflétta bindiskyldunni hjá Seðlabankanum. Var þar rétt skref þegar það var gert til að ýta undir fjárfestingar bankanna eða var það rangt skref? Ég held að menn verði að reyna að átta sig á því og svara þessum spurningum sem beint er til hæstv. fjármálaráðherra vegna þess að við erum auðvitað að reyna að læra af þessari reynslu. Við stöndum frammi fyrir því núna að við erum með mikinn vanda innan lands og sá vandi verður ekki leystur, hæstv. forseti, með þeirri umræðu sem margir tala um, að hoppa yfir í evru, norska krónu eða eitthvað slíkt. Vandinn er ekkert leystur á þeim nótum eins og hann er hér á landi nú um stundir.