opinberir háskólar.
Frú forseti. Ég get tekið undir það sem kom fram hjá hv. síðasta ræðumanni, hv. þm. Höskuldi Þórhallssyni, að þetta frumvarp er í raun og veru stærra en fjöldi greinanna og blaðsíðanna sem því fylgir í frumvarpinu sjálfu og greinargerð. Í frumvarpinu er fjallað um háskólastigið í landinu, um opinbera háskóla sem nær þá, a.m.k. eins og sakir standa í dag til Háskóla Íslands, Háskólans á Akureyri og Kennaraháskólans sem áætlað hefur verið og ákvörðun tekin um að sameinist Háskóla Íslands á þessu ári.
Í greinargerð með frumvarpinu kemur m.a. eftirfarandi fram, stuttlega í athugasemd við 1. gr., með leyfi forseta:
„Með lögum nr. 167/2007 voru þær breytingar gerðar á lögum nr. 57/1999, um búnaðarfræðslu, að yfirstjórn Landbúnaðarháskóla Íslands og Hólaskóla – Háskólans á Hólum færðist frá landbúnaðarráðuneyti yfir til menntamálaráðuneytis.“
Þarna kemur ekki nákvæmlega fram hvort þessi lög eiga að ná yfir þá skóla báða og mér þætti fróðlegt ef hæstv. menntamálaráðherra gæti gefið frekari svör við því.
Það er eðlilegt að umræðan hafi snúist mikið um nokkur grundvallar- má segja pólitísk viðfangsefni sem m.a. lúta að skólagjöldum, því jafnvel þó að því hafi verið haldið fram í þessari umræðu að frumvarpið fjalli í raun og veru ekki um skólagjöld í opinberum háskólum þá er engu að síður eðlilegt, miðað við orðalag bæði frumvarpsins og ekki síður greinargerðarinnar, að pólitísk umræða fari fram um það mál í tengslum við frumvarpið um háskólana og að kallað sé eftir viðhorfum stjórnmálaflokkanna til þess álitaefnis. Einkum er það auðvitað mikilvægt ef í ljós kemur, eins og mér fannst í raun endurspeglast í stuttri umræðu hér um miðja síðustu viku, að flestir stjórnmálaflokkar, ekki alveg allir en flestir sem eiga fulltrúa hér á Alþingi, væru andvígir skólagjöldum í opinberum háskólum. Það er því eðlilegt að á því sé hnykkt í umræðunni, í umfjölluninni í menntamálanefnd og í nefndarálitum og hugsanlega með breytingum á orðalagi á því frumvarpi sem hér er til umfjöllunar til þess að taka af allan vafa þar að lútandi en ég mun koma betur að því á eftir.
Það eru nokkur atriði, frú forseti, sem ég vildi gera að umræðuefni sérstaklega í tengslum við þetta frumvarp en ég vil láta þess getið strax í upphafi að við í Vinstri hreyfingunni – grænu framboði erum jákvæð gagnvart frumvarpinu eins og það er, meginhugsuninni á bak við það, og við teljum mikilvægt að það fái vandaða efnisumfjöllun. Það breytir því ekki að í frumvarpinu eru nokkur atriði sem við mundum vilja sjá með öðrum hætti, og a.m.k. höfum áhyggjur af og tökum undir gagnrýni sem hefur komið fram á nokkur tiltekin atriði, ekki bara hér á Alþingi heldur líka utan úr samfélaginu.
Í fyrsta lagi vil ég nefna 6. gr. sem fjallar um skipan háskólaráðs. Það hefur verið gagnrýnt að með þessu frumvarpi er gert ráð fyrir breytingum á skipan háskólaráðs þannig að meiri hluti háskólaráðsins, sem á alls að vera sjö manna, komi utan háskólans. Um þetta eru bersýnilega skiptar skoðanir. Hæstv. menntamálaráðherra hefur látið þá skoðun í ljósi að hún telji mikilvægt að meiri hluti ráðsins komi utan háskólasamfélagsins sjálfs. Ég segi fyrir mína parta að ég er ósammála þessu viðhorfi. Ég tel einmitt mikilvægt og ekki síst fyrir sjálfstæði háskólans sjálfs að hann sé sjálfráður að meiri hluta til um eigin málefni. Ég tel að það sé mótsögn fólgin í því að tala annars vegar um að efla og styrkja sjálfstæði háskólans og hins vegar síðan að taka völdin af háskólasamfélaginu sjálfu, ef svo má að orði komast, í skipan háskólaráðsins.
Þarna tel ég að séu mótsagnir á ferðinni. Ég tek undir þau viðhorf sem m.a. hafa komið frá stúdentum, stúdentaráði og frá samtökum stúdenta, bæði Röskvu og Vöku, þar sem þau leggja áherslu á að fulltrúum stúdenta í stúdentaráðinu sé ekki fækkað. Ég held að stúdentar hafi mjög mikið til málanna að leggja og það sé rétt sem hefur komið fram í málflutningi þeirra að háskólinn væri lítið ef ekki væru stúdentar og það sé mikilvægt að nýta sér reynslu þeirra, þekkingu og viðhorf í stjórn háskólanna.
Sömu rök eiga að sjálfsögðu við um fulltrúa háskólasamfélagsins, eins og það er orðað í 6. gr. Ég tek því ekki undir þau viðhorf sem endurspeglast í frumvarpinu um að meiri hluti háskólaráðs eigi að koma utan háskólasamfélagsins. Það þýðir ekki að ég telji ekki að það geti verið gott fyrir háskólasamfélagið að fá utanaðkomandi rýni og sjónarmið inn í starf sitt, ég tel að það geti alveg verið á sínum stað, en mér finnst ekki rétt að gera það með þeim hætti sem hér er lagt til.
Ég ætla síðan aðeins að nefna 1. gr. sem fjallar um gildissviðið og kalla eftir viðhorfum hæstv. menntamálaráðherra til þess að hér er ekki gert ráð fyrir því að háskólarnir séu í raun nafngreindir eða taldir upp í lögunum heldur sé það gert með auglýsingu sem menntamálaráðherra birtir. Það vekur auðvitað upp spurninguna um það hvort það sé þá hægt með einfaldri auglýsingu ráðherra að t.d. leggja niður háskóla eða sameina háskóla, t.d. að leggja niður opinberan háskóla í dag sem gæti risið upp á morgun sem einkaskóli, svo dæmi sé tekið. Það kann vel að vera að ég sé hér að mála þetta eitthvað svörtum litum en ég spyr að því: Hefði ekki verið eðlilegra að skólarnir væru hreinlega nafngreindir í lögunum? Hér er auðvitað um mjög mikilvæga starfsemi að ræða, starfsemi sem líka er fjallað um í fjárlögum og tekur verulega fjármuni úr ríkissjóði, sem við væntanlega viljum öll, til þess að efla þeirra starfsemi, en ég velti því fyrir mér hvort það sé ekki mikilvægt að þeir séu nafngreindir í lögunum sjálfum.
Ég nefni 12. gr. sem fjallar um skólana, forseta skóla og deildarformenn. Það hefur einhver umræða farið fram um hugtakið „skólar“ í þessu samhengi sem ég ætla ekki að blanda mér í og vænti þess að menntamálanefnd muni taka svona — ja, eigum við að segja íslensku umræðuna um það nákvæmlega hvað einstakar einingar eiga að heita, mér finnst það kannski ekki aðalatriði í þessu samhengi.
Ég velti því fyrir mér hvaða hæfiskröfur á að gera til þeirra sem stýra þessu starfi vegna þess að í athugasemd með 12. gr. segir, með leyfi forseta, um hlutverk forseta skóla:
„Þá munu þeir bera ábyrgð á gæðum kennslu, rannsókna, stjórnsýslu, stoðþjónustu og annarrar starfsemi sviðsins. Af þessu má ljóst vera að gera verður ríkar hæfiskröfur til þeirra sem ráðnir eru í störf forseta. Í frumvarpinu er farin sú leið að forsetar skuli uppfylla almenn hæfisskilyrði prófessora samkvæmt lögum.“
Í 12. gr. er ekki að finna þessar kröfur. Eins og ég les 12. gr. er hvergi sagt að forsetar eigi að uppfylla hæfiskröfur prófessora en það segir hins vegar í greinargerðinni. Ég spyr því hæstv. ráðherra: Hvernig stendur á þessu misræmi milli greinarinnar sjálfrar og athugasemda með frumvarpinu þar sem þessi grein er skýrð? Ég vil líka spyrja að því hvort ekki sé eðlilegt að sambærilegar hæfiskröfur séu gerðar til rektora háskólans eins og forseta einstakra sviða eða skóla. Ég fæ ekki séð að í frumvarpinu sé það gert og óska því eftir viðhorfi hæstv. menntamálaráðherra til þessa atriðis.
Síðan er auðvitað ekki hægt að fara í gengum þetta mál öðruvísi en að fjalla um það sem við höfum kallað skólagjöld og í 24. gr. frumvarpsins sem fjallar um fjárhagsmálefni er m.a. kveðið á um það, með leyfi forseta:
„Háskóla er heimilt að afla sér tekna til viðbótar við framlög skv. 1. mgr. með skrásetningargjöldum sem nemendur greiða við skráningu í nám, allt að 45.000 kr.“
Þar sem ég lít svo á að hér sé um þjónustugjald að ræða, þ.e. að skrásetningargjaldið sé þjónustugjald, þá er fyrsta spurningin sú: Er það virkilega þannig á 21. öldinni, árið 2008, að kostnaðurinn við að skrásetja nemanda sé 45 þús. kr. á ársgrundvelli? Getur það verið í tölvuvæddu samfélagi nútímans að það sé hinn raunverulegi kostnaður? Það er fyrsta spurningin.
Burt séð frá því segir einnig hér neðar í 24. gr., með leyfi forseta:
„Háskólaráð geta gert tillögu til ráðherra um breytingar á hámarksfjárhæð skrásetningargjalda.“
Í skýringum við þá grein segir síðan, með leyfi forseta:
„Hér ber að undirstrika að um er að ræða heimildir til töku þjónustugjalda sem ætlað er að mæta þeim tilkostnaði sem hlýst af því að veita umrædda þjónustu. Þau rök sem búa hér að baki byggjast á því að rétt sé að virkja kostnaðarvitund, einkum nemenda og starfsmanna háskólanna, og á gjaldtakan að vera stjórntæki til að stýra eftirspurn eftir þeirri þjónustu sem um er að ræða hverju sinni.“
Nú geta menn auðvitað sagt: Já, gott og vel. En það er ómögulegt að skilja þetta öðruvísi en að það eigi að beita skólagjöldum eða upphæð skráningargjaldanna, sem verða þá skólagjöld um leið, til þess að afla skólanum frekari tekna. Það er ekki hægt að skilja þessa greinargerð öðruvísi en að þarna sé opnað á skólagjöld. Nú hristir hæstv. menntamálaráðherra höfuðið eins og ég vissi að hún mundi gera og þá spyr ég á móti: En eftir því sem ég hef best skilið þá er það ekki bara stjórnarandstaðan sem skilur þetta svona heldur háskólasamfélagið líka — og hún hristir áfram höfuðið og ég bið hana um að fara nú ekki alveg í hring með hausinn á búknum — en ég hef heyrt í mörgum úr háskólasamfélaginu sem skilja þetta þannig. Ég hlýt því að spyrja og velta því fyrir mér þegar málið kemur til umfjöllunar í menntamálanefnd hvort ekki sé rétt að taka af allan vafa þannig að það séu ekki mismunandi skoðanir á þessu. Ef hæstv. menntamálaráðherra og meiri hlutinn á Alþingi ætla sér alls ekki að opna fyrir skólagjöld er þá ekki einfaldast að taka bara algerlega fyrir það með jákvæðu ákvæði þar um í lögunum? Það hlýtur að verða samstaða um það nema tilgangurinn sé nákvæmlega sá sem ég var hér að rekja.
Við höfum spurt eftir afstöðu Samfylkingarinnar og þar hefur komið fram lítillegur blæbrigðamunur. Það hafa margir sagt, m.a. hv. þm. Katrín Júlíusdóttir, að það sé skýr stefna Samfylkingarinnar að það eigi ekki að taka upp skólagjöld í opinberum háskólum. En í Viðskiptablaðinu 15. október 2004 segir Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, formaður Samfylkingarinnar, orðrétt, með leyfi forseta:
„Mér finnst skólagjöld á háskólastigi alveg geta komið til álita. Það skiptir auðvitað verulegu máli hvernig þau eru lögð á, t.d. hvort það yrði á allt háskólastigið eða einvörðungu framhaldsnám. Það er líka verulegur munur á aðstæðum eftir háskólagreinum en ég sé engin sanngirnisrök fyrir því að fólk borgi verulegar fjárhæðir fyrir fullorðinsfræðslu og fyrir börn á leikskólum en ekkert fyrir aðgang að háskólum.“
Sú skoðun á sér bersýnilega einhverja talsmenn innan Samfylkingarinnar að það megi setja á skólagjöld í háskólum þannig að það er mikilvægt að fá þetta á hreint. Ég spyr því aftur: Ef það er … (KJúl: Fá hvað á hreint?) Hver afstaða Samfylkingarinnar raunverulega er, (MÁ: Hún er löngu komin fram.) já, ég er að vísa hér m.a. í formann Samfylkingarinnar (MÁ: Hún er fjögra ára gömul.) sem ég geri ráð fyrir að hafi eitthvað um það að segja hver afstaða Samfylkingarinnar er og það mun þá endurspeglast í vinnu menntamálanefndar þegar fram koma hugmyndir um það að taka af allan vafa, m.a. um það að setja jákvætt ákvæði um það í þetta frumvarp að það verði ekki heimilt að taka skólagjöld. Þá mun sú afstaða auðvitað koma fram, hvernig Samfylkingin greiðir atkvæði í því efni.
Ég fagna því auðvitað ef breið samstaða er um það hér, fyrir utan Sjálfstæðisflokkinn sem hefur lýst yfir og hefur landsfundarsamþykkt fyrir því að vilja taka upp skólagjöld í háskólum, þá fagnar maður því að sjálfsögðu ef Samfylkingin ætlar að standa að landsfundarsamþykkt sinni hvað þetta varðar.
Það hefur auðvitað verið heilmikil umræða um samkeppnisstöðu opinberu háskólanna gagnvart einkaháskólunum o.s.frv. Ég hef því miður ekki tíma, virðulegur forseti, í þessari fyrstu ræðu til þess að fara nánar út í það en hefði gjarnan viljað gera það og mun áskilja mér rétt til þess að koma aftur á mælendaskrá í þessari umræðu til þess að fara yfir þau mál. Ég hef sem sagt velt hér upp nokkrum álitamálum, m.a. spurningum til hæstv. menntamálaráðherra sem ég vona að geti brugðist við þeim síðar í umræðunni og gefið (Forseti hringir.) einhver svör við þeim atriðum sem ég hef komið hér inn á.