opinberir háskólar.
Frú forseti. Ég vil bara ítreka það sem komið hefur fram í máli mínu og ýmissa annarra sem hafa fjallað um frumvarpið nú þegar að í athugasemdum við 24. gr. er m.a. sagt að um sé að ræða heimildir til töku þjónustugjalda sem er ætlað að mæta þeim tilkostnaði sem hlýst af því að veita umrædda þjónustu og gjaldtakan eigi að vera stjórntæki til að stýra eftirspurn eftir þeirri þjónustu sem um er að ræða hverju sinni. Þetta stendur hér í skýringum með ríkisstjórnarfrumvarpinu. Það er ekki hægt að skilja þetta á annan veg en þann að það sé að minnsta kosti verið að opna einhverja glufu um leið og háskólaráðinu er fengin heimild til þess að leggja til breytingar á þessum skráningargjöldum. Þess vegna ítreka ég það að ef þetta er ekki skilningur samfylkingarþingmanna, sem ég fagna ef svo er, vilja þeir þá ekki taka þátt í því að eyða honum með afdráttarlausum hætti með nauðsynlegum efnislegum breytingum á frumvarpinu til þess að um þetta (Forseti hringir.) þurfi ekki að vera deilt?