opinberir háskólar.
Forseti. við erum að ræða frumvarp um opinbera háskóla. Ég geri ekki ráð fyrir að það komi fram mikið nýtt efnislegt í minni ræðu þar sem ég er þriðji samfylkingarmaðurinn sem ræði þetta mál. Ég vara menn við að svo kann að vera að hér verði eitthvað endurtekið sem þeir hv. þingmenn félagar mínir Einar Már Sigurðarson og Katrín Júlíusdóttir hafa sagt áður. Mig langar þó að taka þátt í þessari umræðu meðal annars vegna þess að ég á þess ekki kost að fjalla um málið í menntamálanefnd og ekki víst að ég geti verið með í síðari umræðum um þetta mál.
Fyrst vil ég segja að ég held að hér sé gott frumvarp á ferðinni og mér sýnist það vera nokkuð vel unnið án þess að geta fellt um það mikla dóma. Meginbreytingar frumvarpsins eru jákvæðar, þ.e. breytingarnar í kafla IV um nýtt skipulag í skólum og spretta eins og við vitum af sameiningu KHÍ og HÍ og þeim breytingum sem þar eiga að verða í kjölfarið. Má ég segja í því framhaldi að ég tel að menntamálanefnd þurfi að leggjast aðeins yfir þau orð sem notuð eru í þessu skyni. Það er ekki nógu gott að undirdeildir í háskólum skuli vera kallaðar skólar. Það gefur ekki nógu góða hugmynd um hvað hér er átt við. Ég legg til að menntamálanefnd reyni að virkja menn til að finna heppilegra orð. Það hefur ekki dottið ofan úr himninum í minn hug en það þýðir ekki að það sé ekki finnanlegt.
Ég tek undir efnisatriði öll í ræðu Einars Más Sigurðarsonar sem flutti svona heildarálit okkar samfylkingarmanna um þetta frumvarp og ég fagna því sérstaklega, eins og hann gerði, að ekki er gert ráð fyrir skólagjöldum af nokkru tagi í þessu frumvarpi. Ég tel að það sé eitt af helstu einkennum þess og að því beri að fagna en kem að öðru leyti að þeim málum síðar. Þetta er 1. umr., það er mikið starf eftir í nefndinni og ég vil nefna nokkur atriði og benda á sem þarf að ræða betur í menntamálanefnd og hugsanlega breyta og gera grein fyrir og tek þar með undir einkum flest efnisatriði í ræðu Katrínar Júlíusdóttur.
Í 6. gr. er fjallað um háskólaráð og skipan þess. Þar er um nýjungar að ræða og eins og hv. þm. Sigurður Kári Kristjánsson, formaður menntamálanefndar, nefndi þá er þetta með ýmsum hætti í þeim skólum sem hér starfa og það er eðlilegt að menn vilji með einhverjum hætti samræma það þegar lögin um skólana eru nú færð í ein. Á hitt er að líta að það er ekki endilega víst að sú samræming þurfi að vera að fullu og það getur ýmislegt átt við um hvern skóla fyrir sig.
Hér takast á tvö meginsjónarmið sem bæði eru nokkurs virði, annars vegar það sem mætti kalla svona tæknileg stjórnsýslusjónarmið nefndarinnar sem samdi þetta frumvarp og meginatriðin í því má lesa í greinargerðinni, þ.e. að það sé eðlilegt að háskólaráðið í hinni nýju skipan sinni fyrst og fremst skólanum öllum, að menn komi þannig að málum en séu þar ekki fulltrúar sérstakra einstakra sviða, deilda eða faga. Á hinn bóginn er auðvitað sjónarmiðið um sjálfstæði háskólans, að það felist sérstök verðmæti í því að háskólarnir, universitas, eins og það heitir á latínu, séu sjálfstæðir. Það þarf ekki annað en að skoða sögu háskólanna og háskólasamfélagsins á Vesturlöndum sem hefur breiðst út um heiminn til að sjá að verðmæti felast í þessu sjálfstæði. Þau eru vísindaleg og þar með efnisleg. Háskólarnir hafa bæði fært heiminn og mannkynið fram og þeir hafa líka verið miðstöð umræðu sem í sjálfu sér hvetur menn til lýðræðis og hvetur menn til þess að horfa hver á annan með augum jafnréttis og virðingar.
Háskólarnir, vestrænu háskólarnir sem við lítum til sem meginstofnana í menningu heimsins hafa starfað í ýmsu umhverfi, hafa starfað undir ýmsum leiðtogum, undir ýmiss konar stjórnsýslu, konungum af guðs náð, einræðisherrum hinum verstu, í lýðræðisríkjum af ýmsu tagi, í höfðingjaveldi og menn geta haldið áfram að nefna, en þeim hefur tekist flestum oftast að halda með einhverjum hætti sjálfstæði sínu og það er mjög mikilvægt eins og ég sagði áðan. Þess vegna hljóta menn að taka mark á þeirri röksemd sem nefnd er að óeðlilegt sé að meiri hluti í háskólaráði sé utan skóla og að hætta sé á því að utanskólamenn geti ráðið ýmsu sem eðlilegast er að háskólaborgararnir sjálfir — og þá á ég ekki við það í neinni upphafinni merkingu heldur að borgarar þessa háskólasamfélags, að þeir ráði. Ágæt hugmynd er sú að háskólaborgarar kalli á menn að utan til þess að taka þátt í stjórn skólans með sér vegna þess að þeir eru einmitt óháðir þessum sjónarmiðum, hagsmunum einstakra faga, deilda, nefnda, eru ekki inni í þeim átökum, reiptogi sem óhjákvæmilega kemur upp í stofnunum af þessu tagi.
Ég velti því hins vegar fyrir mér af hverju menntamálaráðherra, af hverju ríkisstjórnin og stjórnmálamennirnir þurfa að tilnefna hér tvo menn eins og hér er gert ráð fyrir inn í stjórnina. Ég geri mér grein fyrir að þetta er ekki nýtt ákvæði. Ég tel að það sé algjör óþarfi. Ég tel að háskólarnir geti algjörlega ráðið við það sjálfir að stjórna sér og gera þá samninga við menntamálaráðherra og við stjórnvöld sem þarf þannig að ég beini því til menntamálanefndar að skoða þetta betur og kem með þá lausn á málinu að fella burt þessa tvo fulltrúa menntamálaráðherra og hafa þetta þannig að innanskólamenn velji í sameiningu þá utanskólamenn sem þeir vilja hafa til þess að stjórna háskólanum með sér.
Sérstakt mál er svo það að Háskóli Íslands býr við forna hefð í þessum efnum um háskólaráðið. Nú er að vísu og vissulega um háskólaráð af öðru tagi að ræða hér en áður var. En gagnvart nemendum er það þannig að þeir börðust fyrir þeim rétti að fá fulltrúa í háskólaráð. Það var hluti af baráttu hér á sjöunda áratugnum einkum fyrir lýðræði í skólum og þeir fengu því framgengt að þeir fengu tvo menn í háskólaráð. Af hverju fengu þeir tvo en ekki þrjá eða einn? Kynni það að hafa stafað af þeirri staðreynd, má segja, þeirri að minnsta kosti löngu hefð í háskólanum, allt frá því í kringum 1970, að þar hafa einkum tekist á tvær meginfylkingar, tvær, ekki þrjár og ekki fimm, tvær meginfylkingar og þær hafa með þessum hætti getað sameinast nokkurn veginn í þessum faglegu efnum sem málefni háskólaráðs yfirleitt fjalla um með því að þar er sem sé einn frá hvorri fylkingu. Ég held að það eigi að taka tillit til þess arna og gera ráð fyrir þessu í lögunum.
Ég vil líka nefna 18. gr. um inntökuskilyrði og taka undir athugasemdir hv. þm. Katrínar Júlíusdóttur um þau. Stefna okkar hvað varðar háskólann á að vera sú að opna háskólann, að auka möguleika manna á að komast inn í háskólann, ekki að loka háskólanum. Þá er ég að segja að eitt það sísta sem gerst hefur á þessum vettvangi undanfarin ár er að Háskóli Íslands hefur hvað eftir annað af fjárhagsástæðum þurft að loka, talið sér skylt eða talið sig þurfa að loka á aðra en stúdenta, á aðra en þá sem eru með sérstakt stúdentspróf til inngöngu í háskólann. Ég ætla ekki að fara út í umræður um numerus clausus og aðrar lokunarhugmyndir en tel að hér eigi orðalag og meginhugsun að vera allt önnur en hún er í 18. gr. og að þetta hljóti að vera einhver misskilningur sem stafar kannski af því að þarna hafi komið við sögu í samningu frumvarpsins menn sem horfa kannski einkum á vandræði skrifstofunnar og bókhaldsins í þessum efnum en ekki á meginsjónarmið þau sem ég ræddi.
Í þriðja lagi eru svo prófgjöldin og önnur gjöld sem nefnd eru í 24. gr. Þá er rétt að fagna því fyrst að vegna innritunargjaldanna eða skrásetningargjaldanna er sérstaklega tiltekið í lagagreininni að þau, með leyfi forseta:
„... skulu eigi skila háskóla hærri tekjum en sem nemur samanlögðum útgjöldum háskólans vegna nemendaskráningar og þjónustu við nemendur sem ekki telst til kostnaðar við kennslu og rannsóknastarfsemi, ...“
Þetta er nýjung hvað varðar Háskóla Íslands og Háskólann á Akureyri. Þetta er nýjung. Þetta var ekki í lögum, þ.e. er ekki í lögum um þessa skóla. En það er reyndar í lögunum um Kennaraháskóla Íslands. Þar stendur, með leyfi forseta:
„Skrásetningargjald skal taka mið af kostnaði vegna innritunar, kennsluefnis og pappírsvara sem skólinn lætur nemendum í té og nauðsynlegt er vegna starfsemi háskólans.“
Ég tel þetta mikilvægt, einkum í ljósi þess máls sem hér var mikið deilt um á síðasta kjörtímabili þegar allir skólarnir þrír komust að því að hið æskilega skrásetningargjald væri 45 þús. kr. íslenskar og hver gerði það, að því er haldið var, á sinn hátt með sínum útreikningi. Við gagnrýndum hér nokkur þessa skrýtnu aðferð við þetta og töldum að hér væri um samræmt gjald að ræða sem ekki væri þjónustugjald í venjulegum skilningi þess orðs. Nú er það ljóst samkvæmt þessu frumvarpi að það verður þjónustugjald og háskólarnir þurfa hver um sig að rökstyðja þá upphæð sem þeir fara fram á þar sem hún á að nægja fyrir þjónustu sem veitt er en ekki meira. Í þessu ljósi er reyndar sérkennilegt orðalag það sem síðar kemur og fallið til þess að valda misskilningi og ég legg til að menntamálanefnd kanni það sérstaklega. Það er um að háskólaráðið geti gert tillögu til ráðherra um breytingar á hámarksfjárhæð skrásetningargjalda vegna þess að skilyrði þau sem upphæðin á að styðjast við hlýtur að miðast við tillögu háskólaráðs eða tillögu frá háskólanum sem byggist á tilteknum útreikningum. Þess vegna er þessi grein óþörf og það er ekki snjallt að hafa hana inni í frumvarpinu og getur hún leitt til misskilnings.
Ég verð svo að segja að vissulega, eins og hér hefur verið rætt, er orðalagið í 24. gr. um prófgjöldin afar sérkennilegt og ég vil líta svo á, með fullri virðingu fyrir þeim sem menntamálaráðherra hefur haft í að semja þetta, að hér hafi orðið um mistök að ræða og misskilning. Það getur ekki verið að menn ætli að nota upphæð sem á að borga fyrir upptökupróf, sjúkrapróf og inntökupróf og fjarpróf eða hvernig þetta var nú sem einhvers konar stjórntæki. Það gengur ósköp einfaldlega ekki upp vegna þess að það stjórntæki virkar þá aðeins á þá nemendur sem eiga lítið af peningum en ekki á þá nemendur sem eiga mikið af peningum. Mér dettur ekki í hug að halda að menntamálaráðherra eða þeir sem hafa komið nálægt frumvarpinu hugsi þannig.
Ég legg því til að hvað sem líður nú þessum gjöldum sjálfum, sem hljóta að vera að minnsta kosti þjónustugjöld þótt það fari eftir — eða maður kynni að ætla að það væru einungis þjónustugjöld — þá geri menntamálanefnd sérstaka grein fyrir því í nefndaráliti eða með öðrum hætti, ræðu formanns eða með öðrum hætti að skilningur hennar og þingsins sé ekki sá sem gefinn er í skyn með þessum mistakasetningum í greinargerð frumvarpsins. Við verðum að setja markaðnum ákveðin landamæri. Hann á heima sums staðar og lögmál hans, ekki annars staðar. Markaðurinn er þjónn, ekki húsbóndi, segjum við í Samfylkingunni og segjum við jafnaðarmenn. Í þessu máli um það hvort Gunna og Jón fái að taka aftur próf eða vera veik í öðru prófi eða taka fjarpróf, þar á markaðurinn ekki heima. Menn verða að gjöra svo vel að stjórna því með öðrum hætti ef einhver grunur er um misnotkun eða ofnotkun í þessu skyni.
Forseti. Ég ætlaði að ræða hér líka almennt um skólagjöld af því að umræðan hefur gefið tilefni til þess en mér tekst nú ekki að gera það á þeim tíu sekúndum sem eftir eru af ræðu minni núna. Ég ætla að hafa um það aðra fimm mínútna ræðu sem er fundarform sem ég hef ekki prófað áður og hlakka mjög til að koma öllum mínum meiningum um skólagjöldin til skila á þeim tíma.