135. löggjafarþing — 94. fundur,  21. apr. 2008.

opinberir háskólar.

546. mál
[17:50]
Hlusta

Jón Magnússon (Fl):

Virðulegi forseti. Ég hefði óskað eftir því að hæstv. menntamálaráðherra væri í salnum þar sem ég þarf að beina orðum mínum að hluta til hennar. Ef hún er í húsinu þætti mér alla vega eðlilegt að hún væri viðstödd.

Margt gott er að segja um frumvarp til laga um opinbera háskóla sem hér liggur fyrir en þó verður að skoða ákvæði í frumvarpinu og gera breytingar á. Margir hv. þingmenn hafa vakið athygli á ýmsum hlutum sem þarf að skoða og get ég tekið undir flest þau sjónarmið sem fram komu í ræðu hv. þm. Marðar Árnasonar áðan. Ég vil byrja á að vísa til ummæla sem hæstv. menntamálaráðherra lét falla í andsvari við hv. þm. Kristin H. Gunnarsson þegar málið var til umfjöllunar á fimmtudaginn var. Það er einu sinni þannig að það gliðnar því miður dálítið í þessari umræðu en þá sagði hæstv. menntamálaráðherra, með leyfi forseta:

„Frjálslyndi flokkurinn vill ekki samkeppni, vill ekki fjölbreytni á háskólastigi.“

Virðulegi forseti. Þetta voru orð hæstv. menntamálaráðherra við þá umræðu. Þó að það þyki e.t.v. ekki þinglegt ætla ég að leyfa mér að segja: Þvílíkt endemis rugl.

Á hverju skyldi hæstv. menntamálaráðherra, sem hér var að koma í salinn, byggja þessa skoðun? Skyldi hún byggja þessa skoðun á stefnu Frjálslynda flokksins? Ég get vísað til stefnu Frjálslynda flokksins um háskólastigið þar sem segir:

„Áhersla er lögð á að skólagjöld verði ekki tekin upp í ríkisreknum háskólum. Frjálslyndi flokkurinn er hlynntur markaðslausninni í rekstri menntastofnana á háskólastigi, þó með þeim formerkjum að tryggt sé að sú menntun sem boðið er upp á í einkareknum skólum standist þær kröfur sem almennt eru gerðar til þess skólastigs.“ — Síðan er talað um aukin fjárframlög til háskólasamfélagsins.

Ég spyr: Hvað kemur hæstv. menntamálaráðherra til að fullyrða að frjálslyndur flokkur sé ekki hlynntur markaðslausnum? Hvað kemur hæstv. menntamálaráðherra til að segja að frjálslyndur flokkur sé ekki fylgjandi samkeppni? Hvað kemur hæstv. menntamálaráðherra til að segja að frjálslyndur flokkur vilji ekki fjölbreytni á háskólastigi þvert ofan í yfirlýsingar flokksins og ályktanir um þau málefni. (Gripið fram í.) Ég átta mig á því — nei, hv. þm. Sigurður Kári Kristjánsson getur haft sína skoðun á því en ekkert í orðum hans gaf tilefni til þessara andsvara af hálfu menntamálaráðherra. Ef svo hefði verið hefði ég ekki tekið þetta upp með þeim hætti sem ég geri hér. Þessar ræður liggja allar fyrir þannig að auðvelt er að fletta þeim upp og ég leyfi mér að fullyrða að ekkert gaf tilefni til þessara andsvara.

Ég spyr: Með hvaða hætti rökstyður hæstv. menntamálaráðherra þessi ummæli um stefnu Frjálslynda flokksins í þessum málum? Ég get hvergi séð, í neinu því sem frá talsmönnum flokksins hefur komið í menntamálum, neitt sem getur réttlætt þessi ummæli. Á þessu vil ég vekja sérstaka athygli og vænti ég þess að hæstv. menntamálaráðherra leiðrétti þau ummæli sem hún viðhafði og ég hef vísað til.

Hv. þm. Guðfinna Bjarnadóttir sagði að við ættum að standa saman um að efla háskólana okkar og ég er henni fyllilega sammála. Ég tel að frumvarpið sem hér er til umræðu sé að mestu leyti til þess fallið að búa opinberum háskólum eðlilega og nauðsynlega lagaumgjörð. Þó koma nokkur mál til skoðunar. Ég hef m.a. skoðað ákveðnar athugasemdir við frumvarpið — hv. þm. Mörður Árnason vakti m.a. athygli á spurningunni um það með hvaða hætti ákvæðum yrði komið fyrir varðandi fulltrúa í háskólaráð samkvæmt 6. gr.

Þegar ég var nemandi í Háskóla Íslands tók ég þátt í baráttu sem tryggði stúdentum tvo fulltrúa í háskólaráði. Á þeim tíma töldum við sem vorum þá forustumenn í Vöku, félagi lýðræðissinnaðra stúdenta, og til andsvara í stúdentaráði Háskóla Íslands, að það væri mjög mikilvægt að háskólasamfélagið byggðist á lýðræði og lýðræðislegum hugmyndum og að nemendur hefðu mjög víðtækan rétt til afskipta og til að vita hvernig hlutirnir gengju fram. Mér finnst að verið sé að fara ranga leið með þeim ákvæðum sem kveðið er á um í 6. gr. frumvarpsins. Ég hefði viljað sjá að lögð hefði verið fram tillaga um það að háskólasamfélagið væri lýðræðislegra en þar er gert ráð fyrir og fulltrúum stúdenta í háskólaráði yrði ekki fækkað. Mér finnst það skipta miklu máli að rödd stúdenta fái að heyrast og fái að heyrast þannig að eftir því verði tekið. Það er alveg hárrétt, sem hv. þm. Mörður Árnason benti á í ræðu sinni áðan, að í tugi ára hafa tvær meginfylkingar stúdenta tekist á um völdin og það er að mínu viti lýðræðislegt að báðar fylkingarnar eigi möguleika á að eiga fulltrúa í háskólaráði í Háskóla Íslands.

Þar sem við erum ekki eingöngu að fjalla um Háskóla Íslands heldur einnig um aðra opinbera háskóla þá er ekki endilega víst að ein lausn henti fyrir alla háskóla. Frumvarpið er að mínu mati um of stjórnlynt og gefur ekki nægjanlegt svigrúm til þess að háskólarnir megi sjálfir móta sér sínar reglur hvað varðar stjórnun og annað fyrirkomulag. Það er ósköp eðlilegt að setja rammareglur um það með hvaða hætti farið skuli með hlutina varðandi opinbera háskóla en mér finnst hins vegar skipta miklu að stakkurinn sé þó þannig sniðinn að háskólarnir hafi mikið svigrúm til þess að ákveða sjálfir hvernig þeir starfa í lýðræðislegu samfélagi.

Mér finnst líka skipta miklu — og einmitt vegna hugleiðinga hv. þm. Marðar Árnasonar áðan um það hvort fulltrúar háskólasamfélagsins ættu fyrst og fremst að koma að stjórnuninni eða einhverjir utan háskólasamfélagsins — að fulltrúar háskólasamfélagsins, valdir með lýðræðislegum hætti, hafi með stjórnunina, að gera að sjálfsögðu undir eftirliti menntamálaráðherra. Út af fyrir sig er ekki óeðlilegt að menntamálaráðherra skipi einn fulltrúa í háskólaráð opinberra háskóla en það ætti að duga til að augu og eyru almannavaldsins væru þar eins og nauðsynlegt er. Þannig bærust hæstv. menntamálaráðherra jafnan þau sjónarmið og skoðanir sem uppi eru hverju sinni þannig að taka mætti á og gera ráðstafanir ef ástæða þætti til. Að öðru leyti á háskólasamfélagið í lýðræðisþjóðfélagi að mótast og stjórnast af sjálfu sér á lýðræðislegum grunni og mér finnst ákvæði 6. gr. og raunar 5. gr. ekki taka nægjanlegt tillit til þeirra sjónarmiða sem ég er að rekja.

Ég fékk mjög góða tillögu senda frá Vöku, félagi lýðræðissinnaðra stúdenta, þar sem vakin er athygli á því að með frumvarpinu eigi að fækka fulltrúum nemenda í æðsta ráði háskólans, þ.e. háskólaráði, og ég tek undir þau sjónarmið sem þar koma fram. Þá kemur líka fram í áliti Vöku að verið sé að sækjast eftir hærri skrásetningargjöldum. Ég sé í sjálfu sér ekki að endilega sé verið að tala um það í frumvarpinu sem hér liggur fyrir. Það er hins vegar nauðsynlegt, af því að skrásetningargjöld og skólagjöld hefur borið á góma, að háskólasamfélagið hafi heimild til þess, þegar um sérnám er að ræða, eða breytingar frá því almenna, að gera ráðstafanir til að geta fjármagnað sig með ýmsum hætti. Vísa ég þá til ágætrar ræðu hv. þm. Guðfinnu Bjarnadóttur um þau atriði.

Meginatriðið er samt að við höfum opinbera háskóla sem ákveðin flaggskip íslenskrar menntunar og menningar. Þar verðum við að miða við að sjónarmiðin varðandi jafnrétti til náms gildi og þess vegna eigum við að vera með skóla sem standa öllum opnir. Skólagjöld eða skráningargjöld í opinbera háskóla mega því ekki vera utan þeirra marka að allir sem hafa vilja og getu til eigi þess kost að njóta háskólamenntunar. Það skiptir máli að vel takist til því að framtíð og velferð íslensku þjóðarinnar byggist að töluverðu leyti á því að vel sé búið að æðstu menntun. Gæði menntunar, lýðræði og fjölbreytni eiga að gera opinbera háskóla á Íslandi að þeim bestu sem til eru í veröldinni.