opinberir háskólar.
Hæstv. forseti. Ég hef því miður ekki nema fimm mínútur til að halda seinni ræðu mína í þessari umræðu. Mig langar til að byrja á því að vísa á bug ummælum sem hv. þm. Katrín Júlíusdóttir viðhafði í byrjun ræðu sinnar. Hún vakti athygli á því að hv. þm. Árni Þór Sigurðsson hefði flutt málefnalega og efnislega ræðu sem væri öfugt við það sem aðrir þingmenn Vinstri hreyfingarinnar – græns framboðs hefðu gert fram að því. Ég held að ég hafi verið eini þingmaður Vinstri hreyfingarinnar – græns framboðs sem hafði þá haldið ræðu og ég vísa því á bug að hún hafi ekki verið efnisleg. (SKK: Hún var mjög efnisleg.) Hún var mjög efnisleg, segir hv. formaður menntamálanefndar. Ég þakka fyrir staðfestinguna á því. Þó að ég hafi eytt megninu af tíma mínum í að ræða um skólagjöld tel ég það hafa verið fullkomlega eðlilegt í ljósi þess hvernig umræðan hefur þróast.
Það er líka eðlilegt að það komi við kaunin á þingmönnum Samfylkingarinnar þegar við förum með skólagjöldin inn í þessa umræðu af þeim krafti sem ræður þingmanna bera vitni um. Ég ber fulla virðingu fyrir síðustu landsfundarályktun Samfylkingarinnar og ég veit að tekist hefur verið á um stefnu flokksins í þessum efnum. Tekist hefur verið á um ummæli sem viðhöfð hafa verið — ummæli hæstv. utanríkisráðherra, Ingibjargar Sólrúnar Gísladóttur, hæstv. viðskiptaráðherra, Björgvins G. Sigurðssonar, og fleiri úr þingmannaliði Samfylkingarinnar — en það er rétt að kúrsinn hefur verið leiðréttur hvað þetta varðar. Var það gert á síðasta landsfundi Samfylkingarinnar. Það breytir því ekki að Samfylkingin er undir gríðarlegum þrýstingi frá samstarfsflokknum, Sjálfstæðisflokki, um að láta af þeirri stefnu sem samþykkt var á landsfundi flokksins.
Ég vil því halda því fram með nokkrum rökum að umræða um skólagjöld sé fullkomlega eðlileg, bendi í því sambandi á leiðara í Viðskiptablaðinu nú í vikunni — nú verð ég, hæstv. forseti, að játa á mig þau afglöp að ég er ekki með dagsetninguna á leiðaranum. Fyrirsögnin var: „Skólagjöldin vantar“. Leiðarahöfundur heldur því fram að markmið frumvarpsins sé frekar bitlaust, ýmsar lagfæringar séu jú góðra gjalda verðar en í frumvarpinu sé fátt verulega bitastætt. Það verði hvorki talið umdeilanlegt né stórpólitískt. Það sé hins vegar verulega athyglisvert að eitt mál vanti …
(Forseti (KÓ): Er hv. þingmaður með farsíma?)
Ég biðst afsökunar, hæstv. forseti, á að ég skuli hafa verið með farsíma í vasanum. Það skyldu þingmenn aldrei gera. Ég er búin að slökkva á honum, hæstv. forseti.
Það er eðlilegt að mikið hafi verið rætt um skólagjöldin þó að ekki sé talað um þau í frumvarpinu vegna þess að allt ber í raun að sama brunni í þeim efnum. Það er vilji Sjálfstæðisflokksins, hæstv. menntamálaráðherra og hv. formanns menntamálanefndar að innleiða skólagjöld í opinberu háskólana. Þau vilja jafna það sem þau kalla samkeppnisstöðu háskólanna með því að heimila opinberu háskólunum að leggja á skólagjöld. Þau komust hins vegar ekki alla leið í þeim efnum í þessu frumvarpi. Eflaust hefur verið tekist á um það milli stjórnarflokkanna, ég geri ráð fyrir því, og niðurstaðan orðið sú sem við sjáum í frumvarpinu, að ekki eigi að fara þá leið að sinni. Ég held því hins vegar fram að styttra sé í það en okkur grunar að sú leið verði knúin fram. Ég tel verulega þörf á því að menntamálanefnd tali afar skýrt í nefndaráliti sínu þegar málið verður afgreitt frá nefndinni. Ég mun beita mér fyrir því í umræðum nefndarinnar þegar þar að kemur.
Mér þykir mjög mikilvægt að hafa fylgst með þessari umræðu. Í athugasemdum manna hefur margt merkilegt og greinargott komið fram, t.d. hafa stjórnarþingmenn, eins og hv. þm. Mörður Árnason, tekið undir ábendingar mínar um notkunina á íslensku. Talað hefur verið um skipun háskólaráðs sem ég gerði einnig athugasemd við — ég held að við verðum að fá því breytt. Ef ég fæ einhverju breytt um hugmyndafræðina sem liggur á bak við 24. gr. mun ég leggja allt í sölurnar í starfi nefndarinnar í þeim efnum.