opinberir háskólar.
Forseti. Ég tek undir margt sem hér hefur verið bent á. Það er þó eitt sem ég vil vekja athygli á. Æ fleiri koma hingað til landsins með menntun erlendis frá. Stundum er þessi menntun viðurkennd, stundum ekki.
Mér sýnist að reglur í þessum efnum séu óskýrar. Hvort maður fær menntun sína viðurkennda fer kannski eftir því hvaðan maður er. Þess vegna bendi ég á 21. gr. þar sem m.a. stendur, með leyfi forseta:
„Háskólaráð skal setja reglur um prófhald, þ.m.t. viðurkenningu erlendra prófa …“
Því spyr ég: Eru til grunnreglur um hvernig háskóli viðurkennir erlend próf, þ.e. einhver rammi sem háskólinn starfar eftir, og ef ekki: Hyggst hæstv. menntamálaráðherra grípa til aðgerða í þessum málum?