135. löggjafarþing — 94. fundur,  21. apr. 2008.

Þjóðskjalasafn Íslands.

544. mál
[19:50]
Hlusta

menntamálaráðherra (Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir) (S):

Frú forseti. Ég kem hingað til að svara spurningum sem komu fram í ræðu hv. þm. Kolbrúnar Halldórsdóttur. Þær snerta tvo þætti, annars vegar aðstöðuleysi Þjóðskjalasafnsins sem var fyrri spurningin og síðan var spurning er tengdist m.a. viðtali við Hrafn Sveinbjarnarson, héraðsskjalavörð í Kópavogi, og ég bendi á að í viðtali sem var tekið við Hrafn annars vegar á Rás 1, Víðsjá og síðan í Speglinum, og síðan í Morgunblaðinu hefur þeim verið margsvarað, bæði af mér, Ólafi Ásgeirssyni þjóðskjalaverði og öðrum sem eru ekki sammála Hrafni.

Ég vil draga það fram að akkúrat núna og undanfarin ár má í rauninni taka undir það að hlúa þarf enn betur að málefnum Þjóðskjalasafnsins. Þá er ég sérstaklega með húsnæði þess í huga, en ég vil líka segja að það er skondið að sjá það dregið fram í umræðunni akkúrat á þessum mánuðum og síðustu missirum þegar Þjóðskjalasafnið fær aukin fjárframlög og aukið svigrúm til að mæta þeim kröfum sem gerðar eru til safnsins. Núna er betur búið og hlúð að Þjóðskjalasafninu en oft hefur verið gert áður.

Síðan vil ég draga fram það sem hv. þm. Kolbrún Halldórsdóttir talaði um skjöl sem hefur verið eytt og ég vil vitna í því sambandi til Ólafs Ásgeirssonar þjóðskjalavarðar þar sem hann segir m.a. í Morgunblaðsviðtali, með leyfi forseta:

„Það er auðvitað fjarstæða að halda því fram að við séum haldin einhverri eyðingaráráttu hér á Þjóðskjalasafninu, þvert á móti. Þau eru tekin afskaplega alvarlega, skilaboð um að eyða ekki gögnum. Þeim er ekki eytt nema það sé í raun vandræðalaust.“

Síðan bætir Ólafur við: „Ég kann ekkert dæmi um að embættismenn eyði gögnum vísvitandi, það hef ég ekki séð“ þannig að þeirri gagnrýni Hrafns sé svarað.

Síðan er hitt og það er miklu stærra mál, þ.e. hvernig aðbúnaður allur er hjá Þjóðskjalasafninu. Það er rétt sem kom fram í máli hv. þm. Kolbrúnar Halldórsdóttur að fjárveitingar til Þjóðskjalasafnsins hafa verið auknar, t.d. á þessu ári, sérstaklega til að mæta mikilli geymsluþörf. Það má segja að stór hluti þess fjármagns sem er eyrnamerktur Þjóðskjalasafninu sé með það að markmiði að Þjóðskjalasafnið taki á þeim vanda sem er hvað brýnastur. Hluti af þessu fjármagni verður eflaust notaður til að taka á leigu húsnæði til að brúa bilið meðan unnið er að varanlegri lausn á geymslumálum safna.

Ég vil líka geta þess að núna er vinnuhópur að störfum sem hefur það hlutverk og markmið að fara yfir það sem ég hef m.a. lagt til, að meginverkefnið varðandi uppbyggingu menningarstofnana, fyrir utan náttúruminjasafnið sem við vonandi sjáum verða að veruleika innan fáeinna ára, er verkefni í húsnæðismálum sem snerta Þjóðleikhúsið, Listasafn Íslands og síðast en ekki síst Þjóðskjalasafnið. Það liggur alveg ljóst fyrir, m.a. samkvæmt skýrslu frá starfshópi sem ég bað um að fara yfir geymslumál safna, að brýnasta úrræðið og brýnustu lausnina þarf Þjóðskjalasafnið. Það hefur margvíslegt hlutverk en ábyrgð þess og kröfur til safnsins eru alltaf að aukast, ekki síst með tilliti til þess að við höfum m.a. einkavætt ríkisfyrirtæki sem hefur leitt til þess að Þjóðskjalasafninu ber að taka á móti margvíslegum gögnum frá þeim stofnunum og ríkisfyrirtækjum sem hafa verið einkavædd, bæði bönkunum, Símanum og fleiri fyrirtækjum þannig að geymslumálin eru tvímælalaust stærsta vandamál Þjóðskjalasafnsins. Þjóðskjalasafnið þarf á nýju húsnæði að halda.

Ég vonast til þess að starfshópurinn sem ég gat um áðan og hefur það hlutverk að fara yfir þarfirnar, yfir mögulegar lausnir, skili af sér innan tveggja mánaða og þá verði hægt að fara vel yfir það hvaða möguleikar og hvaða leiðir eru til að uppfylla þarfir Þjóðskjalasafnsins.

Ég vil líka geta þess að það er hugsanlegt að við þurfum á bráðabirgðaúrræði að halda vegna yfirtöku varnarmálagagnanna. Það er smærra mál. Stóra málið er að koma Þjóðskjalasafninu í varanlegt húsnæði. Mér er til efs að það húsnæði sem það er í núna sé nægilega stórt til að sinna þeim verkefnum sem safninu eru falin en ég vil líka geta þess að stór hluti nýjustu verkefna Þjóðskjalasafnsins er unninn úti á landi í samvinnu við héraðsskjalasöfnin. Ég get nefnt Ísafjörð varðandi skráningu gagna í utanríkisráðuneytinu og síðan má geta Akureyrar og Héraðsskjalasafnsins á Húsavík. Þetta eru verkefni sem er mjög auðvelt að úthýsa og við erum um leið að byggja upp þekkingu víðar en á höfuðborgarsvæðinu varðandi skráningu gagna.

Ég held að með þessu, frú forseti, hafi ég svarað spurningum hv. þm. Kolbrúnar Halldórsdóttur. Ég veit að hún mun fylgja þeim eftir hjá hv. menntamálanefnd enda tel ég mikilvægt að þeim sé fylgt þar eftir. Þjóðskjalasafnið þarf á þessum lögum sem við erum að ræða um núna að halda í kjölfar þeirra laga sem við samþykktum 2003, breytingar á stjórnsýslulögunum, og þessum heimildum varðandi það að fylgja eftir rafrænni skráningu opinberra gagna hjá opinberum stofnunum. Þetta mun þýða aukið umfang Þjóðskjalasafnsins eins og kemur fram í kostnaðaráliti frá fjármálaráðuneytinu en um leið vil ég geta þess að við erum sérstaklega að skoða hvað hægt er að vinna í samvinnu við þá aðila sem ég hef rætt um nú þegar og það eru héraðsskjalasöfnin á landsbyggðinni. Ég tel tvímælalaust að þetta frumvarp sé til þess að efla og styrkja starfsemi Þjóðskjalasafnsins. Stóra málið varðandi Þjóðskjalasafnið sem slíkt til lengri tíma litið er síðan að það fái varanlegt húsnæði þannig að Þjóðskjalasafnið geti sinnt þeim skyldum sem kveðið er á um með lögum að það eigi að uppfylla.