135. löggjafarþing — 94. fundur,  21. apr. 2008.

Þjóðskjalasafn Íslands.

544. mál
[19:57]
Hlusta

Árni Þór Sigurðsson (Vg):

Frú forseti. Ég vil örstutt koma upp og þakka hæstv. menntamálaráðherra fyrir þau svör sem hún hefur veitt við þeim spurningum sem hv. þm. Kolbrún Halldórsdóttir setti fram í síðustu viku þegar umræða um þetta mál hófst. Hún lagði þá fram nokkrar fyrirspurnir til hæstv. ráðherra. Hæstv. ráðherra hefur nú svarað þeim og ég þakka fyrir það og ítreka að þær spurningar, þær vangaveltur og þau svör munu fylgja málinu til umfjöllunar í hv. menntamálanefnd. Þingmaðurinn mun að sjálfsögðu fylgja því eftir þar.