Landeyjahöfn.
Frú forseti. Ég efast ekki um að þeir Sunnlendingar geti komið sér saman um það þar sem um örnefni er að ræða hvort þau eigi að vera með greini eða ekki og það verði auðvelt að fá niðurstöðu í því. Hins vegar er ég að spá í það í ljósi þess að mér skilst að á viku hafi um 40% Vestmannaeyinga skrifað undir að þeir vildu frekar fá nýjan og öflugri Herjólf en fara í þessa framkvæmd truflar það mig talsvert mikið. Eins og hv. þm. Bjarni Harðarson kom inn á áðan er a.m.k. um 3 milljarða kr. framkvæmd að ræða og eins og hann sagði sjálfur er þar um fráviksspá að ræða (BjH: Ég sagði það ekki.) og sennilega muni þetta kosta mun meira.
Þá langar mig að spyrja hv. þingmann hvort honum finnist að ekkert eigi að hlusta á Vestmannaeyinga í þessum efnum heldur bara bæjarstjórnina eina og hvort ekki sé harla lítið spennandi að fara í þessa framkvæmd upp á alla þessa peninga ef Vestmannaeyingar vilja ekki fá þetta, ef það er staðreyndin, ef það er rétt sem mér er sagt að á viku hafi 40% lagst gegn — (Gripið fram í: Yfir 40.) nú, yfir 40%. Mig langar að spyrja hann út í þetta og ég segi hæstv. samgönguráðherra að ég er mjög hugsi yfir því hvort ég geti stutt það að fara í þessa framkvæmd ef Vestmannaeyingar eru sjálfir á móti henni. Ég efast ekkert um að fólk í Landeyjum vilji fá þetta og að framkvæmdin yrði lyftistöng fyrir það byggðarlag en ég held að við séum meira að hugsa um Vestmannaeyingana í þessu tilviki.