135. löggjafarþing — 94. fundur,  21. apr. 2008.

Landeyjahöfn.

520. mál
[21:13]
Hlusta

Sturla Böðvarsson (S):

Hæstv. forseti. Hér fer fram athyglisverð umræða um mjög mikilvægt mál, sem er löggjöf um Landeyjahöfn, sem er verkefni í þeim tilgangi hugsað að bæta verulega samgöngur við Vestmannaeyjar.

Umræðurnar sem hér hafa farið fram í kvöld um þetta mál hlutu að geta leitt til þess að ég segði hér nokkur orð. Ekki síst vegna þess að ég held að kannski hafi ekki allir gert sér grein fyrir því að aðgerðir til að bæta samgöngur við Vestmannaeyjar hljóta að kosta mjög mikla fjármuni. Það hefur lengi legið ljóst fyrir.

Á síðasta kjörtímabili var unnið mjög að því að bæta samgönguþjónustu við Eyjar, bæði með því að koma að flugi til Vestmannaeyja af hálfu ríkisins og einnig með því að stórfjölga ferðum Herjólfs á milli lands og Eyja í samræmi við óskir heimamanna. Allt voru þetta aðgerðir sem ég tel að út af fyrir sig hafi heppnast ágætlega.

Á hinn bóginn hefur lengi legið fyrir að Herjólfur, sá sem nú siglir, uppfyllir ekki þær kröfur sem gerðar verða og gerðar eru um siglingar á þessari leið. Ef hann ætti að sigla áfram þyrfti að gera á honum umfangsmiklar og kostnaðarsamar breytingar. Allt var það skoðað mjög vandlega á sínum tíma af starfshópi sem hæstv. samgönguráðherra nefndi hér áðan, starfshópi sem vann á vegum samgönguráðuneytisins í góðu samstarfi við heimamenn að því að leita úrbóta.

Sá hópur sem vann að skoðun á kostum var settur á laggirnar í samstarfi við þingmenn Suðurkjördæmis á sínum tíma og þar var verið að velta fyrir sér jarðgöngum því að það var sú leið sem Eyjamenn vonuðu í lengstu lög að gæti verið raunhæfur kostur. Verið var að skoða það að fá nýtt skip til að sigla til Þorlákshafnar, hraðskreitt skip, eins og var nefnt hér réttilega að ástæða hefði verið til að skoða. Síðan var það Bakkafjöruleiðin svokallaða sem er hér til umræðu í formi þess að setja á laggirnar sérstaka landshöfn við Landeyjahöfn.

Allir þessir kostir voru skoðaðir vandlega og það er kannski rétt að rifja það upp — vegna þess að mér finnst stundum að menn tali eins og ekkert samráð hafi verið haft við Eyjamenn — að ekki voru færri en þrír fyrrverandi bæjarstjórar í þeim starfshópi sem lagði línurnar og komst að þeirri niðurstöðu, eftir vandlega skoðun, undir forustu Páls Sigurjónssonar verkfræðings, fyrrverandi forstjóra Ístaks, að áfram bæri að skoða Bakkafjöruleiðina. Það var sú niðurstaða sem síðar varð eftir að annar vinnuhópur lagðist yfir málið til þess að skoða hina tæknilegu útfærslu.

Ég held að við þingmenn eigum að meta vinnu allra þessara aðila og líka framsóknarmenn, hv. þingmenn úr þeim ágæta flokki, sem báru auðvitað ábyrgð á sinn hátt, þáverandi þingmenn og ráðherrar úr Framsóknarflokknum, á þessari niðurstöðu í samstarfi við okkur sjálfstæðismenn í ríkisstjórn þá. Þessi hópur allur á að leggjast á árar með þeim hætti að við ljúkum þessu verki til hagsbóta fyrir Vestmannaeyjar. Við getum ekki dregið lappirnar í því. Þetta varð niðurstaða ríkisstjórnarinnar á síðasta kjörtímabili og Alþingi samþykkti hana. Alþingi samþykkti samgönguáætlum sem gerði ráð fyrir Bakkafjörulausninni og gerði ráð fyrir fjármunum til þess verks.

Framsóknarflokkurinn er því að sjálfsögðu með í þessu og ég vona svo sannarlega að þingmenn Suðurkjördæmis flækist ekki fyrir í þessu máli. Það væru nú meiri ósköpin ef við stæðum frammi fyrir því. Ég vona að hæstv. samgönguráðherra þurfi ekki að fá neitt annað en byr í seglin til þess að ljúka þessu verki, ljúka verki sem var afgreitt á síðasta þingi, 17. mars árið 2007 með samþykkt samgönguáætlunar.

Vil ég því biðja hv. þm. Bjarna Harðarson að koma með okkur í þetta lið. Koma með okkur sem höfðum og höfum mikinn áhuga á bættum samgöngum við Vestmannaeyjar. Landeyjahöfn mun bæta þær.