135. löggjafarþing — 95. fundur,  28. apr. 2008.

verðbólguþróun.

[15:10]
Hlusta

forsætisráðherra (Geir H. Haarde) (S):

Herra forseti. Stundum hefur maður á tilfinningunni að hv. þingmaður, formaður Framsóknarflokksins, skilji ekki alveg eðli þeirra mála sem verið er að fjalla um. (GÁ: Það á við um fleiri.) Við erum að glíma við innfluttan verðbólguvanda og aðstæður sem enginn sá fyrir þegar kjarasamningar voru gerðir 17. febrúar sl. Ríkisstjórnin lá þá undir ámæli fyrir að gera ekkert til að stuðla að kjarasamningum. Svo þegar þeir voru komnir þakkaði enginn ríkisstjórninni eitt eða neitt fyrir atbeina hennar að því máli.

Forsendur hafa vissulega breyst. Það er verkefni okkar allra að takast á við hinar breyttu aðstæður og það munum við að sjálfsögðu gera í góðu samstarfi við aðila vinnumarkaðarins. Það hefur þegar verið ákveðinn fundur á svokölluðum samráðsvettvangi. Hann verður haldinn áður en langt um líður þegar allir fundarmenn sem þangað eru boðaðir geta mætt. Ég geri ráð fyrir að það verði strax eftir helgi og þá munum við taka til óspilltra málanna að því marki sem slíkur vettvangur getur gripið inn í framvindu mála.