breytt stjórn fiskveiða í samræmi við úrskurð mannréttindanefndar Sameinuðu þjóðanna.
Herra forseti. Það sem ég var að tala um í sambandi við Írak var bara almennt um mannréttindi, hvað þau væru misjöfn í löndum og hvað þegnar og ríkisstjórnir færu misjafnlega í það að hlíta mannréttindum. Í framhaldi af því sagði ég að mín skoðun væri sú að ríkisstjórnin mundi fara eftir úrskurði mannréttindanefndarinnar. Íslenska ríkið hefur undirgengist þá skilmála þannig að ég reikna ekki með neinu öðru, hv. þm. Jón Magnússon, auðvitað geri ég ekki ráð fyrir neinu öðru, og það er bara svar mitt við þessu, en að ríkisstjórnin taki þetta til þeirrar meðferðar sem fullnægjandi er. Ég reikna ekki með neinu öðru, við erum búin að skrifa undir þennan sáttmála.