135. löggjafarþing — 96. fundur,  29. apr. 2008.

breytt stjórn fiskveiða í samræmi við úrskurð mannréttindanefndar Sameinuðu þjóðanna.

339. mál
[16:05]
Hlusta

Siv Friðleifsdóttir (F) (andsvar):

Virðulegi forseti. Niðurstaðan er skýr að því leyti að mannréttindanefndin segir: Hér er ekki rétt farið að og því þurfi að bregðast við og þið hafið 180 daga, eitthvað svoleiðis til að bregðast við. Það er alveg skýrt. En það að hlíta niðurstöðunni — næsta verkefni er að koma með nýtt kerfi og, eins og hv. þm. Jón Magnússon kaus að kalla það, að koma með annað kerfi. Það er rétt. Eins og ég les málið og miðað við útskýringar hv. þingmanns, ef þetta yrði samþykkt þá væru menn bara að segja: Jú við ætlum að hlíta niðurstöðunni en síðan förum við í það verkefni að finna út hvaða kerfi eigi að koma á. Það er auðvitað mjög mikið pólitískt verkefni að gera það þannig að ég skil hv. þingmann þannig. Ég býst líka við því að hv. þingmaður sé að reyna að draga fram þann ágreining sem við höfum séð á milli stjórnarflokkanna í málinu þar sem hæstv. utanríkisráðherra og formaður Samfylkingar, Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, segir og hefur sagt mjög skýrt: Þetta er alvarleg niðurstaða. Þau ríki sem vilja láta taka sig alvarlega í mannréttindamálum taka ekki niðurstöðuna, rífa hana og henda henni bara á bak við sig. Menn þurfa að bregðast við og gera breytingar á kerfinu þó að hún kveði ekkert upp úr um það á þessu stigi hverjar þær verða. Á sama tíma hafa bæði hæstv. forsætisráðherra og landbúnaðar- og sjávarútvegsráðherra sagt: Ja, líklega þarf ekki að breyta neinu. Líklega þarf ekki að gera neinar lagabreytingar. Það er mjög ólíklegt. Það er því mikill ágreiningur á milli stjórnarflokkanna. Ég hef líka velt því fyrir mér hvort sá ágreiningur sé svo djúpstæður að þess vegna sé málið unnið á lokuðu borði í sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytinu og talsmaður Samfylkingarinnar í sjávarútvegsmálum (Forseti hringir.) veit ekkert hvað er að gerast í þessu máli.