135. löggjafarþing — 96. fundur,  29. apr. 2008.

breytt stjórn fiskveiða í samræmi við úrskurð mannréttindanefndar Sameinuðu þjóðanna.

339. mál
[16:40]
Hlusta

Flm. (Jón Magnússon) (Fl) (andsvar):

Virðulegi forseti. Það er ekki spurningin um að virða, við eigum að fara eftir þessu áliti. Við eigum aldrei að samþykkja það að mannréttindi séu ekki virt. (EBS: Hef ég samþykkt það?) Nei, nei, ég var ekki að halda því fram. Ég vil taka það fram vegna frammíkalls hv. þm. Ellerts B. Schram að ég ber miklu meiri virðingu fyrir honum, og hef meiri tiltrú á honum, en svo að ég ímyndi mér að hann vilji ekki virða slíkt. Það veldur mér því vissum vonbrigðum að í honum er að hluta til einhver uppgjafartónn, eitthvert vonleysi í sambandi við það að berjast gegn ófrelsinu eða gegn skerðingum mannréttinda. Ég hef þá trú að þau skörð hafi verið rofin í múra gjafakvótakerfisins að lag sé til að takast á við þetta skrímsli og það eigum við að gera óhrædd. Við eigum að velta þessu kerfi um koll. Það er okkar hlutverk, sjálfstæðra manna á Íslandi.