135. löggjafarþing — 96. fundur,  29. apr. 2008.

breytt stjórn fiskveiða í samræmi við úrskurð mannréttindanefndar Sameinuðu þjóðanna.

339. mál
[17:10]
Hlusta

Flm. (Jón Magnússon) (Fl) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég er tilbúinn til þess, þegar við höfum kollvarpað því óréttláta gjafakvótakerfi sem við búum við, að snúa mér að baráttunni fyrir því að leiðrétta þau óréttlátu kerfi sem hv. þm. Sigurður Kári Kristjánsson vísaði til. Ég þekki hins vegar ekki nægilega vel til þeirra til að geta tjáð mig með þeim hætti enda kannski eðlilegra að aðrir skipti sér af því ef svo er.

Það sem er höfuðatriðið hér, og það sem máli skiptir, er að við erum lýðræðisríki sem gerum kröfu um að mannréttindi séu virt. Ég var því mjög fylgjandi að það mál sem hér er fjallað um, og var lagt undir mannréttindanefndina, færi þangað og niðurstaða fengist. Niðurstaðan fékkst, þetta er liður í baráttunni gegn óréttlætinu og við höfum á öllum stigum, þar sem mál hafa verið lögð fyrir dómstóla, fengið sigur (Forseti hringir.) í slíkum málum og hv. þm. Sigurður Kári Kristjánsson ætti að taka tillit til þeirra sjónarmiða.