135. löggjafarþing — 96. fundur,  29. apr. 2008.

breytt stjórn fiskveiða í samræmi við úrskurð mannréttindanefndar Sameinuðu þjóðanna.

339. mál
[18:12]
Hlusta

Grétar Mar Jónsson (Fl) (andsvar):

Herra forseti. Það er góð spurning sem hv. þm. Karl V. Matthíasson spyr, hvort stefna stjórnmálaflokkanna standist fyrir mannréttindanefnd Sameinuðu þjóðanna. Það er ekkert víst að svo sé. Sumir, eins og við í Frjálslynda flokknum ætluðum að gera þetta á nokkrum árum, byrja neðan frá, skipta útgerðinni upp í fjóra flokka, byrja á smæstu bátunum, taka tegundir út úr kvóta og annað í þeim dúr sem ég sé ekki ástæðu til að rekja hér.

Ef allir verða jafnir fyrir aðgangi að auðlindinni, allir eiga sama möguleika á að veiða fisk ef þeir eiga til þess skip, get ég ekki séð að það þurfi að gera þetta miklu hraðar en við lögðum til í stefnuskrá okkar og í kosningabaráttu okkar sl. vor. Sama má segja um Samfylkinguna þegar hún talar um fyrningu á jafnvel á tíu eða 20 árum, alveg sama hvort er, þá er ekki verið að leiðrétta hlutina nema á löngum tíma. Það dugar einfaldlega bara ekki til þess að uppfylla þessar kröfur mannréttindanefndar Sameinuðu þjóðanna. Ef byrjað væri á því að taka veiðiheimildir út úr kvóta og bjóða þær upp, hvort sem það væri í tonnum, kílóum eða dögum þá gæti það gengið en það þarf auðvitað að vera eitthvert magn svo það skipti einhverju máli.

Að skamma útgerðina, segir þingmaðurinn. Við megum ekki gleyma því að margar af stóru útgerðunum hafa lagt sig fram um að verja þetta kerfi og við megum heldur ekki gleyma því að sumir hafa borgað (Forseti hringir.) í kosningasjóði og greitt prófkjör fyrir pólitíkusa.