niðurstaða PISA-könnunar 2006.
Frú forseti. Ég vil þakka fyrir þessa fyrirspurn sem þó hefur áður komið fram á þinginu. Ég hef þegar svarað þessari fyrirspurn nokkrum sinnum en engu að síður er gott að ræða þessi mál og mikilvægt.
Ég vara hins vegar við því, eins og áður hefur komið fram, að við miðum eingöngu við PISA. PISA er mjög mikilvægur mælikvarði en má ekki stjórna öllu skólastarfi — mikilvægur mælikvarði, ákveðið leiðsögutæki fyrir okkur hvar megi gera betur. Ég fagna því að hv. þingmaður Framsóknarflokksins skuli taka þetta mál upp því í rauninni er þegar verið að bregðast við þessu.
Í fyrsta lagi vil ég fara út í skammtímaaðgerðir. Okkur eru að berast svörin frá þeim aðilum sem við sendum spurningar og farið verður í sérstakt átak til skemmri tíma. En auðvitað er þetta langtímamál. Við þurfum að hvetja foreldra til að lesa meira fyrir börnin sín heima. Það þýðir ekki að setja alla ábyrgðina á herðar skólanna.
Í öðru lagi erum við með frumvörp til meðferðar í þinginu sem hafa lykilþýðingu til að geta tekið stórstígum framförum í því að efla menntakerfið. Þar segir: „Við þurfum að efla og styrkja kennaramenntunina enn frekar.“ Það er eitt af þessum stóru svörum varðandi PISA-könnunina. Við þurfum að efla og styrkja kennaramenntunina, halda betur utan um kennarana okkar og styðja þá til frekari dáða og góðra verka. Við þurfum að auka sveigjanleikann í kerfinu. Við þurfum að láta leikskólann, grunnskólann og framhaldsskólann ræða betur sín á milli, auka svigrúmið og tækifærin þannig að einstaklingarnir geti fundið sinn farveg innan skólakerfisins. Á þessu er einmitt verið að taka. Í fyrsta sinn fær Alþingi tækifæri til að líta á skólakerfið heildstætt. Við eigum að grípa það tækifæri og samþykkja öll frumvörpin nú í vor.