135. löggjafarþing — 97. fundur,  30. apr. 2008.

lengd viðvera í grunnskóla.

[13:50]
Hlusta

Guðbjartur Hannesson (Sf):

Hæstv. forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir skýr svör. Ég tek undir það sem ráðherra sagði, almennt er þetta til fyrirmyndar og sum sveitarfélög hafa sett sér viðmiðanir. Ég held einmitt að á því eigi að byggja og menn eigi að sammælast um að setja viðmið í reglugerð eða reglur sem unnar yrðu þá af sveitarfélögum og ríkinu sameiginlega. Þetta er búið að fá að gerjast það lengi og það er komin það góð reynsla á þetta að það eru komnar forsendur til að stíga skrefið örlítið lengra, formgera þetta og vinna svona viðmið varðandi bæði mönnun, menntun þeirra sem þarna vinna og ytri aðbúnað, svipaðar reglur og hafa verið settar að hluta til í Reykjavík. Ég veit að Hafnarfjörður hefur unnið að svona reglum, og fleiri sveitarfélög.

Ég geri það að tillögu minni að skipaður verði starfshópur sem í samráði við sveitarfélögin skoði regluverkið á þessu og með hvaða hætti hægt sé að ná utan um þetta umhverfi og setja skýrar reglur með hagsmuni barnanna í huga.