endurskoðun forsendna fjárlaga.
Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir þessa fyrirspurn. Það er mjög athyglisvert að fylgjast með þeirri umræðu sem hefur spunnist vegna svars Seðlabankans við fyrirspurnum framsóknarmanna.
Sérstaklega er athyglisvert hvernig formaður Framsóknarflokksins velur úr svari Seðlabankans það sem honum finnst vera rétt og það sem honum finnst vera rangt, það sem honum finnst hafa leitt til þeirrar niðurstöðu að það væri þensla og það sem honum finnst að hafi ekki leitt til þess að það væri þensla.
Honum finnst t.d. að hækkanir á lánshlutfalli Íbúðalánasjóðs hafi ekki leitt til þenslu. Honum finnst t.d. að skattalækkanir hafi ekki leitt til þenslu. Ef marka má það sem formaður Framsóknarflokksins segir eru það fjárlög þessa árs sem valda allri þeirri þenslu og öllu því sem menn hafa haft áhyggjur af síðustu daga og ár í efnahagsmálunum. Ekkert af því sem veldur honum áhyggjum gerðist fyrr en eftir að Framsóknarflokkurinn fór úr ríkisstjórn síðasta vor.
Seðlabankinn segir hins vegar ekki í þessu svari að þær ákvarðanir sem voru teknar í fjárlögunum hafi verið rangar. Hann undirstrikar að forsendur hafi breyst verulega frá því að fjárlög voru samþykkt. Ef maður ætti síðan að draga ályktanir af því sem kemur fram hjá Seðlabankanum mætti draga þá ályktun að Seðlabankinn teldi að við ættum í dag að fara í það að draga úr þeim umsvifum sem ríkisstjórnin hefur ætlað að halda uppi á þessu ári. Ég er ekki þeirrar skoðunar að það sé skynsamlegt.
Mér þætti hins vegar vænt um að vita hvort Framsóknarflokkurinn telur það skynsamlegt, hvort þetta atriði í svari Seðlabankans sé eitt af því sem hann ætli að draga út eða ekki. (Gripið fram í.) (Forseti hringir.) Ég hef ekki enn þá séð þær forsendur sem leiða til þeirrar þarfar að fara í að endurskoða grunn (Forseti hringir.) fjárlaganna umfram það sem hefðbundið er, frú forseti, þegar unnið er að fjáraukalögum fyrir haustið.