ríkisábyrgð til handa deCODE Genetics Inc.
Hæstv. forseti. Ég vil þakka hæstv. fjármálaráðherra svörin og ekki síður góðan stuðning Péturs Blöndals. Ég held að við bæði séum á réttri leið þegar við getum stutt hvort annað og það held ég að sé í þessu máli — þegar hægri og vinstri ná saman á einum punkti held ég að við séum á réttri leið.
Þetta er rétt ábending hjá hæstv. ráðherra, þetta er heimild en heimildin stendur. Ég hef áhuga á því og fullan vilja til þess að fara fram með frumvarp um breytingar bæði hvað varðar ríkisábyrgðina og þá sérstaklega lög um gagnagrunn á heilbrigðissviði þar sem lögin eru til staðar þó að þau hafi ekki verið nýtt eða framkvæmdinni ekki komið á. Ég tel að rétt sé að skoða hvort ekki sé rétt að afnema þau, nema þau úr gildi. Með fullri virðingu fyrir hinu ágæta fyrirtæki, Íslenskri erfðagreiningu, sem vinnur mjög metnaðarfullt starf og hefur stundað mikilvæga starfsemi fyrir íslenskt vísindasamfélag og langt út fyrir landsteinana, styð ég ekki þá hugmyndafræði sem liggur á bak við miðlægan gagnagrunn í hendi þessa einkafyrirtækis.
Ég vona að ég fái fleiri í lið með mér til þess að flytja slíkt frumvarp og leggja það fyrir þingið, af því yrði hreinsun í lagasafni Alþingis.