húsnæðismarkaðurinn og Íbúðalánasjóður.
Hæstv. forseti. Það fer að verða hálflýjandi að koma upp í ræðustól Alþingis og spyrja hæstv. félagsmálaráðherra um hvað þessi aðgerðalausa ríkisstjórn ætli að gera til að bregðast við þeirri stöðu sem nú ríkir á fasteignamarkaði.
Eins og alþjóð veit ríkir nú algjör stöðnun á þeim mikilvæga markaði. Nær aldrei hefur jafnfáum kaupsamningum verið þinglýst og um þessar mundir. Fasteignasalar standa nær verkefnalausir og við heyrum af miklum erfiðleikum hjá verktakafyrirtækjum og aðilum sem tengjast þessum markaði vegna þess ástands sem þar ríkir.
Eins og ég nefndi í upphafi ræðu minnar hefur hæstv. félagsmálaráðherra verið þráspurð um það hér hvað ríkisstjórnin ætli að gera, en hæstv. ráðherra sagði á síðastliðnu hausti að það ríkti algjört neyðarástand á markaðnum. Nú eru liðnir um átta mánuðir síðan þær fögru yfirlýsingar voru látnar falla úr ræðustól Alþingis en ríkisstjórnin gerir ekki neitt til að styrkja stöðu Íbúðalánasjóðs á markaði og ýta undir eðlilega viðskiptahætti á markaðnum því að bankarnir eru hættir að lána til íbúðakaupa í landinu. Og við skulum ekki gleyma því, hæstv. forseti, að við erum að tala um þau grundvallarmannréttindi fólks að koma sér upp þaki yfir höfuðið.
Svo er annað sem athyglisvert væri að heyra hæstv. ráðherra svara hér. Er hún sammála þeirri söguskýringu margra sjálfstæðismanna að Íbúðalánasjóður hafi stuðlað að þeirri miklu þenslu sem ríkt hefur á þessum markaði? Á árabilinu 2004–2006 lækkuðu útlán Íbúðalánasjóðs um 20%. Að sjálfsögðu voru það því bankarnir sem ruddust inn á þennan markað. En nú er þeim ekki til að dreifa í útlánum og því spyr ég: Hyggst hæstv. ráðherra auka (Forseti hringir.) heimildir Íbúðalánasjóðs til þess að stuðla að eðlilegum fasteignaviðskiptum hér á landi?