húsnæðismarkaðurinn og Íbúðalánasjóður.
Herra forseti. Sem betur fer eru þeir ekki margir sem telja að spá Seðlabankans gangi eftir. Ég vil hins vegar segja út af orðum hv. þingmanns um samskipti mín og hæstv. fjármálaráðherra að því er varðar húsnæðismálin að þau eru bara ágæt og hafa verið það hingað til og ég á ekki von á öðru en þau verði það áfram. Við ræðum mjög mikið stöðuna á húsnæðismarkaðnum og hvort ástæða sé til og tímabært að vera með inngrip á þeim markaði í þeirri stöðu sem við erum í núna. Við erum alveg samstiga í því að það sé ekki tímabært þótt það geti breyst fyrr en seinna. Ég hef ekki hitt einn einasta sérfræðing sem fjallar um húsnæðismálin, fasteignamarkaðinn og fjármálamarkaðinn, sem mælir því bót eða telur ástæðu til þess að örva fasteignamarkaðinn akkúrat á þessari stundu. (Gripið fram í: Fasteignasalarnir.) Nema fasteignasalarnir. Og ég er alveg viss um að við gerum unga fólkinu ekki greiða með því að hvetja það til íbúðarkaupa núna þegar vextir (Forseti hringir.) eru háir og kjörin eins og þau eru.