135. löggjafarþing — 99. fundur,  6. maí 2008.

sértryggð skuldabréf.

611. mál
[14:49]
Hlusta

viðskiptaráðherra (Björgvin G. Sigurðsson) (Sf):

Hæstv. forseti. Ég mæli hér fyrir frumvarpi til laga um breyting á lögum um sértryggð skuldabréf, nr. 11/2008.

Lög um sértryggð skuldabréf tóku gildi 4. mars sl. Síðan þá hefur Fjármálaeftirlitið unnið að gerð reglna sem eftirlitinu er heimilt að setja samkvæmt ákvæðum laganna. Lögin hafa verið þýdd á ensku og síðast en ekki síst hafa fjármálafyrirtæki hafið undirbúning að útgáfu sértryggðra skuldabréf í samræmi við ákvæði laganna.

Af því tilefni hafa komið fram ýmsar ábendingar og fyrirspurnir sem varða efni laganna og fjármálafyrirtækin eða Fjármálaeftirlitið höfðu ekki komið auga á áður en málið var unnið að til þess kæmi.

Það er einkum og sér í lagi hvað varðar 14. gr. laganna, þar sé sérstaklega tekið fram að sértryggð skuldabréf falli ekki í gjalddaga þótt bú útgefanda sé tekið til gjaldþrotaskipta. Þetta er talið nauðsynlegt, ella gildi hin almenna regla laga um gjaldþrotaskipti. Á hinn bóginn sé þess ekki sérstaklega getið að afleiðusamningar, sem gerðir kunna að hafa verið samkvæmt lögunum, falli ekki í gjalddaga.

Við gerð laganna fyrr í vetur þótti ekki rétt að kveða sérstaklega á um stöðu afleiðusamninga í 14. gr. laganna. Ástæðan er sú að tilvitnuð regla 1. mgr. 99. gr. laga um gjaldþrotaskipti tekur til einhliða krafna á hendur þrotamanni sem þó getur vissulega sprottið af samningi sem upphaflega var gagnkvæmur. Afleiðusamningar eru gagnkvæmir samningar sem eiga undir XV. kafla laga um gjaldþrotaskipti. Samkvæmt 1. mgr. 91. gr. laga um gjaldþrotaskipti getur því skiptastjóri tekið ákvörðun um að þrotabúið gangi inn í afleiðusamning. Það er ljóst að það ber skiptastjóra að gera í slíkum tilvikum ella gæti hann bakað sér skaðabótaábyrgð. Á það hefur verið bent að óheppilegt geti verið að skiptastjóri hafi val um það hvort þrotabúið gangi inn í afleiðusamninga eða ekki. Auk þess hefur verið bent á að afleiðusamningar séu oft þannig að um einn aðalsamning sé að ræða og marga undirsamninga. Geti staða þeirra verið mismunandi þannig að það kunni að vera hagstætt fyrir þrotabúið að skiptastjórinn ákveði að þrotabúið skuli ganga inn í suma undirsamninga en ekki aðra. Þótt ekki sé talið líklegt að þessi staða komi upp má taka undir að ekki sé heppilegt að skiptastjóri hafi val um það hvort þrotabúið skuli ganga inn í samningana eða ekki og öruggast væri að mælt væri fyrir um það í lögunum að þrotabúið gangi inn í slíka samninga án fyrirvara. Með því móti má komast hjá því að skiptastjóri lendi í þeirri stöðu að þurfa að velja á milli hagsmuna kröfuhafa samkvæmt sértryggðu skuldabréfi og hagsmuna annarra kröfuhafa.

Þess vegna er lagt til í frumvarpinu að bætt sé málslið við 14. gr. þar sem tekið sé af skarið um að búið taki við réttindum og skyldum samkvæmt afleiðusamningum sem gerðir hafa verið á grundvelli laganna.

Þá hefur verið vakin athygli á því að lög um sértryggð skuldabréf geri ráð fyrir að bæði hin sérvörðu skuldabréf og afleiðusamningar njóti fullnusturéttar í tryggingasafni því sem stendur til tryggingar sértryggðum skuldabréfum útgefanda. Ekki sé hins vegar tekið fram í lögunum hver innbyrðis staða þessara skuldbindinga er, meðal annars hvort skuldbindingar samkvæmt afleiðusamningum njóti stöðu samkvæmt 111. gr. laga um gjaldþrotaskipti líkt og sértryggðu skuldabréfin eða hvort staða afleiðusamninganna sé önnur.

Sú regla gildir, að þegar þrotabú gengur inn í gagnkvæman samning samkvæmt reglum XV. kafla laga um gjaldþrotaskipti gildir regla 3. mgr. 91. gr. laganna um rétthæð greiðslna sem inna á af hendi smátt og smátt. Slíkar greiðslur njóta stöðu samkvæmt 3. mgr. 110. gr., það er skiptakostnaður. Í þessu sambandi verður að vekja athygli á 3. mgr. 111. gr. laganna en samkvæmt henni njóta greiðslur samkvæmt afleiðusamningum, tengdum útgáfu sértryggðra skuldabréfa, aðeins stöðu eins og þær væru skiptakostnaður af verðmæti hinnar veðsettu eignar. Í þessu felst í stuttu máli að greiðslur samkvæmt afleiðusamningum njóta sömu stöðu og kröfur samkvæmt sértryggðu skuldabréfi.

Til að taka af öll tvímæli, það er ef ekki yrði talið að afleiðusamningur uppfyllti það skilyrði að greiðslur ætti að inna af hendi smátt og smátt, er lagt til í frumvarpinu að skýrt sé tekið fram hver sé staða krafna samkvæmt afleiðusamningum sem gerðir eru í samræmi við ákvæði laga um sértryggð skuldabréf. Lagt er til að bætt sé við 14. gr. laganna sérstökum málslið þar sem tekið er af skarið um þetta. Samkvæmt þeirri reglu njóta kröfur samkvæmt afleiðusamningum sömu stöðu í skuldaröð og kröfur samkvæmt sértryggðu skuldabréfi.

Verði frumvarpið að lögum ætti því óvissu að vera eytt um stöðu þeirra afleiðusamninga sem gerðir hafa verið í þeim tilgangi að verja eignir í tryggingasafni því sem stendur til tryggingar sértryggðum skuldabréfum útgefanda.

Rétt til að rifja upp að inntak þessa máls þá hefur þörfin fyrir setningu laga og útgáfu þeirra aukist með aukinni útgáfu sértryggðra skuldabréfa og þess vegna voru lögin sett hér fyrr í vetur. Byggðust þau á ýmsum evrópskum lögum um sama efni, sérstaklega þeim sænsku. Um er að ræða fjármálagerninga sem bera öll helstu einkenni skuldabréfs. Það er skrifleg einhliða, óskilyrt skuldaviðurkenning, með öðrum orðum loforð um að greiða tiltekna fjárupphæð á einum eða fleiri gjalddögum, sama og á við um önnur skuldabréf sem eru ýmist með eða án tryggingar.

Algengustu tryggingaskuldabréf eru veð- eða ábyrgðir einstaklinga eða lögaðila en sértryggðu skuldabréfin eru hins vegar ekki tryggð með eiginlegu veði og heldur ekki með sérstakri ábyrgðarlýsingu þriðja manns og njóta sérstaks tryggingaréttar í tryggingasafni. Þessi lagasetning opnaði íslensku fjármálafyrirtækjunum nýja valkosti, fjárfesta til lengri tíma, stofnanafjárfesta, lífeyrissjóða og líftryggingafélaga. Það er nýr og öruggur valkostur sem að öllu jöfnu getur fengið sjálfstætt mat matsfyrirtækja. Íslensku fjármálafyrirtækin hófu strax að nýta sér þessa löggjöf eftir að hún var samþykkt í byrjun mars. Fyrir liggur að sum þeirra verða sér nú úti um töluverða fjármuni byggða á sértryggðum skuldabréfum. Þau hafa rekist á þessa óvissu sem hér hefur verið rakin og er nauðsynlegt að eyða henni til að það verði ekki fyrirstaða við framgang og notkun fjármálafyrirtækjanna á sértryggðum skuldabréfum.