135. löggjafarþing — 99. fundur,  6. maí 2008.

fæðingar- og foreldraorlof.

387. mál
[15:32]
Hlusta

Ögmundur Jónasson (Vg) (andsvar):

Hæstv. forseti. Ég held að við séum komnir út í orðhengilshátt hér og það getur vel verið að það eigi við um okkur báða. (Gripið fram í: Já, það held ég.) Stóra málið er að við viljum með þessari tillögu okkar draga úr eða afnema þá mismunun sem er á milli þeirra sem starfa hjá ríki og sveitarfélögum annars vegar og hinna sem starfa á almennum vinnumarkaði. Út á það gengur þessi tillaga okkar, segi ég, og er þar alltaf með í huga fyrrum meðflutningsmann, núverandi hæstv. félagsmálaráðherra, Jóhönnu Sigurðardóttur, því að við börðumst fyrir þessu saman. Ég er sannfærður um að hér í þingsalnum eru margir sem eru sammála okkur og hygg að þar sé að finna fólk úr öllum stjórnmálaflokkum.

Það var og er mjög eindregin afstaða Alþýðusambands Íslands, það er mjög eindregin afstaða BSRB, það er mjög eindregin afstaða aðila á vinnumarkaði almennt að fá úr þessu bætt og ég legg áherslu á að við sameinumst um það núna, við afgreiðslu þessa frumvarps, að samþykkja þessa breytingartillögu.