fæðingar- og foreldraorlof.
Frú forseti. Ég ætlaði mér alls ekki að halda því fram að ég einn hefði sett fæðingarorlofslögin á, alls ekki, langt í frá. Það er nú ekki hlustað svo mikið á mig hér á hinu háa Alþingi að sú sé reyndin. Það var auðvitað ríkisstjórn Sjálfstæðisflokksins sem flutti þetta frumvarp á sínum tíma, undir forsæti Sjálfstæðisflokksins. Þetta var mikið framfaraskref svo að því sé haldið til haga.
En varðandi kröfur um eitt og annað, að hækka þetta og hækka hitt, þá er það allt saman greitt af einhverjum. Ef öll réttindi væru jöfnuð upp á við þýðir það meiri álögur á hinn vinnandi mann. Það er hann sem á endanum borgar þetta allt saman. Og þá er það spurningin: Viljum við leggja meira á hinn vinnandi mann en gert er í dag eða viljum við það ekki? Menn hljóta að spyrja sig að því. Vilja menn hafa þessi dúndurlífeyrisréttindi sem gamalt fólk og vera í nauðþurftum alla sína vinnandi tíð? Það er líka spurning sem vert er að velta fyrir sér.
Hv. þingmaður kom inn á lífeyrisréttindi þingmanna. Ég veit ekki betur en ég sé eini þingmaðurinn sem hef flutt frumvarp um að breyta því. Ekki man ég til þess að hv. þingmaður flytti svoleiðis frumvarp. Ég er eini þingmaðurinn sem hefur flutt frumvarp um að breyta því fyrir utan hv. þm. Valgerði Bjarnadóttur. En ég er ekki sáttur við það frumvarp vegna þess að það gerir ráð fyrir því að þingmenn hafi sömu réttindi og opinberir starfsmenn sem eru ekki sömu réttindi og umbjóðendur okkar og kjósendur hafa. Það eru nefnilega allt önnur réttindi.
Ég hefði viljað að þingmenn hefðu sömu réttindi og meginhluti þjóðarinnar, og ég lagði það til í mínu frumvarpi að ganga í einhvern lífeyrissjóð. Lífeyrissjóð verslunarmanna eða einhvern lífeyrissjóð að eigin vali, borga iðgjaldið þar og hlíta því að þau réttindi verða skert ef sjóðurinn nær ekki ávöxtun. Það er nefnilega reginmunur á opinberu sjóðunum og almennu sjóðunum, almennu sjóðirnir þurfa að skerða réttindi ef ávöxtun næst ekki en opinberu sjóðirnir ganga í ríkissjóð ef sú staða kemur upp.