fæðingar- og foreldraorlof.
Hæstv. forseti. Ég vil þakka hv. þm. Katrínu Júlíusdóttur þau svör sem hún veitti hér, svo langt sem þau náðu. Reyndar voru ræður hv. þingmanns meira í fortíðinni en í framtíðinni. Ég vil horfa til framtíðar hvað snertir þessa löggjöf því að þetta er löggjöf sem snertir gríðarlega margar fjölskyldur hér í landinu.
Það er ekkert óeðlilegt í ljósi þeirra væntinga sem ríkisstjórnin hefur gefið um að bæta þessa löggjöf að fólk geri kröfur (Gripið fram í.) um ákveðnar úrbætur. Ríkisstjórnin hefur lofað að lengja orlofið úr níu mánuðum í tólf. Það eru orð ríkisstjórnarinnar.
Mér hefði fundist að nú þegar liðið er næstum eitt ár frá því að ríkisstjórnin tók við, mundi hún gera þingheimi grein fyrir í hvaða áföngum það yrði lengt. Það er ekki gert. Við fórum fram á það í nefndinni að menn mundu reyna að tímasetja einhverjar lengingar þannig að fólk gæti gert sínar áætlanir og fengi að vita hverjar horfurnar væru hjá ríkisstjórninni í aðgerðum í þessum mikilvæga málaflokki.
En það liggur því miður ekki fyrir, rétt eins og í svo mörgum öðrum málum. Ríkisstjórnin virðist vera gjörsamlega úrræðalaus þegar kemur að svo mörgum mikilvægum málaflokkum, að við tölum nú ekki um efnahagsmálin sem eru að sjálfsögðu grunnur að baki löggjöf um fæðingar- og foreldraorlof sem er mjög dýr löggjöf. Það eru miklir peningar sem fara úr fæðingar- og foreldraorlofssjóðnum og þar af leiðandi þurfa undirstöðurnar í þjóðfélaginu almennt séð að vera styrkar. Það er atvinnulífið sem heldur þessum sjóði uppi.
En vegna aðgerða- og úrræðaleysis þessarar ríkisstjórnar er mjög erfitt ástand í samfélaginu. Ríkisstjórnin er greinilega ekki vandanum vaxin í efnahagsmálum og það mun hugsanlega getað bitnað á greiðslum til foreldra nýfæddra (Forseti hringir.) barna, því miður.