135. löggjafarþing — 99. fundur,  6. maí 2008.

fæðingar- og foreldraorlof.

387. mál
[16:21]
Hlusta

Kristinn H. Gunnarsson (Fl) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég get alveg fallist á þá málsmeðferð að málið verði tekið til nefndar aftur milli 2. og 3. umr. og menn ræði þá þetta orðalag í 13. gr. og breyti því í samræmi við nefndarálitið. Engu að síður mundi ég þá ekki styðja þessa tillögu þegar hún kemur til atkvæðagreiðslur eftir 2. umr. Ég mundi sennilega sitja hjá við þetta orðalag vegna þess að ég er ekki sammála því. Síðan trúi ég því að málið taki breytingum og verði að lokum eins og nefndarálitið kveður á um.

Það er alveg rétt hjá hv. þm. Ármanni Kr. Ólafssyni að það eru dæmi um það í nýsettum lögum að yfirvöld fái heimildir til að afla sér upplýsinga um einstaklinga hvert hjá öðru, skattyfirvöld hjá þessum og svo framvegis. En það er ekki rökstuðningur fyrir því að halda áfram á þeirri braut, þvert á móti. Þessi dæmi sýna okkur að þingið hefur einhverra hluta vegna haft lögin svona og það er ástæða til að staldra við og velta því fyrir sér hvort löggjöf eigi almennt að þróast í þessa veru, að kerfið hafi frjálsan aðgang að upplýsingum um einstaklinga, hvort sem það eru skattupplýsingar, heilbrigðisupplýsingar eða hvað sem er.

Ég held að niðurstaðan verði eins og hún varð í félags- og tryggingamálanefnd. Menn vilja þetta ekki. Það er þægilegt hins vegar að kerfið geti skipst á upplýsingum. Það getur verið þægilegt fyrir einstaklinginn og það er sjálfsagt að hafa opna leið til þess að það geti gerst að fengnu samþykki viðkomandi einstaklings sem alltaf verður að vera kjarni málsins. Einstaklingurinn getur þá valið að segja nei. Hann verður þá að sæta því að fá ekki bætur eða fæðingarorlof nema hann sjálfur afli þeirra upplýsinga sem þarf (Forseti hringir.) og komi þeim til skila.

Þetta fannst mér nú, virðulegi forseti, heldur harkalegt.

(Forseti (ÁRJ): Það var nú ekki meiningin.)