135. löggjafarþing — 100. fundur,  7. maí 2008.

lenging flugbrautar á Bíldudal.

490. mál
[13:13]
Hlusta

samgönguráðherra (Kristján L. Möller) (Sf):

Hæstv. forseti. Ég hef svo sem ekki mikið við þetta að bæta umfram það svar sem ég gaf í fyrri ræðu minni, en inn í þetta blandast auðvitað líka þegar menn tala um stærðir flugvéla og lengd braut, hvaða flugvélar geta lent þar. Við þekkjum það að Flugfélag Íslands sem er mest með Fokker Friendship 50 sæta vélar í gangi hafa fækkað viðkomustöðum sínum. Það er sennilega bara hagkvæmnin sem þar ræður vegna þess að hlutir sem þarf að leggja saman eru auðvitað farþegafjöldinn og hvort þetta borgi sig vegna þess að eins og ég sagði áðan getur það stundum verið þannig að fleiri flug með minni vélum sé betra fyrir staðina en færri flug með stærri vélum sem eru illa nýttar og eru þá ekki reknar með nægilegum hagnaði eða kannski tapi sem endar þá í enn hærra fargjaldi sem þegar er nógu hátt.

Ég ítreka því fyrra mitt svar við þessari spurningu. En ég veit auðvitað, ég hef fengið heimsóknir frá sveitarstjórnum á þessu svæði og öðrum aðilum sem eru með hið frábæra átak í gangi sem er sjóstangveiðiferðamennskan, að sá mikli fjöldi ferðamanna sem hefur verið að koma á þessa staði undanfarin ár og er boðaður í sumar er vaxtarbroddur. Og ég vil segja það, virðulegi forseti, að við í samgönguráðuneytinu höfum lagt okkar að mörkum hvað það varðar að skapa regluverk í kringum það mál. Nefnd sem ég skipaði er að störfum og er að vinna frekar að þessum málum í fullri sátt og samráði við þá aðila sem stunda þessa mikilvægu ferðaþjónustu.