135. löggjafarþing — 100. fundur,  7. maí 2008.

fargjöld með Herjólfi.

508. mál
[13:23]
Hlusta

samgönguráðherra (Kristján L. Möller) (Sf):

Hæstv. forseti. Ég tek eftir að hv. þingmaður þakkar fyrir og er ánægður með hvernig svarið sem ég gaf við fyrirspurninni er sett fram. Auðvitað verða alltaf umræður eða skoðanaskipti um hvað svona hlutir eiga að kosta.

Unnið er eftir samningi vegna útboðs sem m.a. Framsóknarflokkurinn samþykkti á síðasta kjörtímabili. Það gerði m.a. leiðtogi flokksins í Suðurkjördæmi, hv. þm. Guðni Ágústsson, formaður Framsóknarflokksins, sem hefur beitt sér fyrir þeim samningi sem þarna er gerður með þeim vísitöluákvæðum sem ég hef rakið. (Gripið fram í: ... lofaði þeim endurskoðun.) Nú veit ég ekki, virðulegi forseti, hverju formaður Framsóknarflokksins lofar í hvert og eitt skipti. (Gripið fram í: ... markaðurinn en ekki formaður flokksins.) En ég tók líka eftir því, virðulegi forseti, að hv. þm. Guðni Ágústsson skiptir mikið um skoðun vegna þess að mér skilst að á síðasta miðstjórnarfundi Framsóknarflokksins hafi hann verið orðinn harður Evrópusinni. Ég veit ekki hvort hv. þm. Bjarni Harðarson skrifar upp á það.

Virðulegi forseti. Að öllu gamni slepptu þá er samningurinn um Herjólf og aðrar ferjur í gildi. Hann er með þessum vísitöluákvæðum sem vega auðvitað þyngra núna í því ástandi sem er í heiminn með olíuverðshækkunum og öðru sem við fáum á okkur á öllum sviðum, alveg sama hvort það er hækkun matarverðs eða samningur varðandi útboð Vegagerðarinnar. Þetta kemur allt inn af fullum krafti núna. Það er því miður þessi ískaldi sannleikur sem blasir við okkur að vísitalan (Gripið fram í.) þar sem vísitölutrygging er kemur þarna inn.