135. löggjafarþing — 100. fundur,  7. maí 2008.

rannsóknaboranir í Gjástykki.

576. mál
[14:35]
Hlusta

Fyrirspyrjandi (Þuríður Backman) (Vg):

Hæstv. forseti. Ég tel mig hafa beint fyrirspurn minni til rétts ráðherra. Ég beini fyrirspurn minni til umhverfisráðherra, þess ráðherra sem á að standa vörð um náttúruna og náttúruvernd hér á landi. Meðan ekki er farið að bora í Gjástykki — það ferli, rannsóknaborunin sjálf og sú röskun sem verður af henni sem slíkri er nú hjá Skipulagsstofnun til umsagnar, ferlið er að hluta til komið aftur til umhverfisráðherra.

Ég tel, sama hvernig allt fer fyrir norðan, að ekki sé fullreynt um orku á öðrum háhitasvæðum sem þegar er farið að raska og skemma út frá sjónarmiði náttúruverndar og það sé óafsakanlegt að byrja að bora í Gjástykki að svo komnu máli. Gjástykki er það háhitasvæði sem ég tel að við eigum að slá skjöld um og varðveita fyrir komandi kynslóðir. Það var inni í fyrsta áfanga rammaáætlunar, Gjástykki er í öðrum áfanga. Það þýðir ekki að segja eftir nokkur ár: Því miður, við getum bara ekki haft þetta inni í rammaáætluninni um þau svæði sem við komum til með að nýta vegna þess að við erum þegar búin að fara inn á þau.

Á að draga svo gerð rammaáætlunar um verndun og nýtingu að það verði búið að raska öllum svæðum sem mikilvæg eru þegar loksins verður hægt að taka hana í gildi? Við höfum möguleika á að vernda Gjástykki þrátt fyrir allt og ég tel að það sé á hendi umhverfisráðherra að gera allt sem í hennar valdi stendur til að forða því að farið verði inn á það með þessa rannsóknaborholu. Ein (Forseti hringir.) borhola er nægileg til að gjörspilla svæðinu. Það sjáum við á þeim borunum sem (Forseti hringir.) þegar eru hafnar á öðrum svæðum.